Sá uppáhaldsbuxurnar á Facebook og ók af stað
Rakel María er vinsæl á samfélagsmiðlum en starfar einnig sem þjálfari, í markaðsmálum og sem förðunarfræðingur. Ljósmynd/Veronika Guls
Rakel María Hjaltadóttir, markaðsmanneskja og förðunarfræðingur, er alltaf með marga bolta á lofti. Haustin eru í miklu uppáhaldi og er hún spennt fyrir því að nota alla kósýgallana sína á næstunni.
„Ég er að gera allskonar skemmtilegt á samfélagsmiðlinum mínum og er núna að vinna í því að opna heimasíðuna mína rakelmaria.is til að gera efnið mitt enn aðgengilegra og flottara. Ég er einnig að vinna við markaðsmál hjá Saffran og þar er mikið af spennandi nýjungum framundan hjá okkur í haust og vetur. Haustið er svo alltaf stór tími í þjálfun en ég er að þjálfa grunnnámskeið hjá Náttúruhlaupum ásamt hóptímum í Hreyfingu,“ segir Rakel María þegar hún er spurð hvað hún er að fást við um þessar mundir.
Hvað færðu þér í morgunmat?
„Ég er rosalega lítil morgunmats manneskja og á erfitt með að borða þegar ég vakna en þegar ég er aðeins komin af stað inn í daginn fæ ég mér yfirleitt alltaf gríska jógúrt skál með auka próteini, bláberjum og múslí. Ég hlakka alltaf til að fá mér grísku skálina mína.“
Hvað gerir þú til þess að hafa það notalegt myrkrið skellur á?
„Mér finnst haustið svo notalegur tími og elska myrkrið á kvöldin. Þá fær maður tækifæri til að kveikja á fallegum lömpum og nota kerti. Ég er líka rosalega mikil kósý manneskja og elska góða kósýgalla og mjúka sokka. Að fara í góða sturtu á kvöldin, setja á sig gott krem, henda sér í kósýgalla, upp í sófa með súkkulaði eða Ninja creami ís yfir einhverju góðu sjónvarpsefni er algjör draumauppskrift fyrir mér á þessum árstíma.“
Rakel María kveikir á lömpum og kertum á haustin. Þessi hleðslupampi er frá Louis Poulsen og kostar 54.500 kr. í Epal. Ljósmynd/Epal
Hvernig núllstillir þú þig?
„Hreyfing úti í náttúrunni. Helst hlaup eða fjallganga. Það nærir mig og núllstillir mig mest. Ef líkaminn og taugakerfið er þreytt þá læt ég göngutúr duga en bara það að komast út í fersk loft og smá hreyfingu er algjörlega nauðsynlegt fyrir mig.“
Hvaða bók er á náttborðinu?
„The Let Them Theory eftir Mel Robbins. Systir mín gaf mér þessa bók og hún er algjörlega frábær. Lífsbreytandi lesning fyrir meðvirkipésa eins og mig.“
Hvaða þætti ertu að horfa á?
„Ég er að horfa á The Rivals á Disney+ en svo laumumst við Gummi kærasti minn í þætti sem heita Married at first sight og eru sýndir á Sýn. Það er raunveruleikasjónvarp sem er það lélegt að það fer hringinn og verður geggjað ávanabindandi dæmi.“
Hvað hlaðvarp ertu að hlusta á?
„Ég er að hlusta á allskonar hlaðvörp. Öll íslensk. Þau sem ég hlusta hvað mest á er Langa hlaðvarp með Snorra Björns, Hún hlaðvarp með Ernu Hrund, Helgaspjallið og Út að hlaupa.“
Áttu uppáhaldsflík?
„Já ég á vintage buxur sem eru alveg klárlega uppáhaldsflíkin mín. Þær eru svartar og gylltar úr hör efni. Ég man svo vel að ég sá þær á Facebook hjá Spuutnik á Þorláksmessu árið 2019 og hugsaði: „Ég verð að eignast þær.“ Svo ég brunaði beint niður í bæ og bað til guðs að þær pössuðu. Þær voru eins og sniðnar á mig og ég elska þessar buxur ennþá í dag. Ég fæ alltaf spurningar út í þær þegar ég nota þær enda eru þær sjúklega júník og flottar.“
En uppáhaldssnyrtivöru?
„Ég á ég á svo margar uppáhalds snyrtivörur. Ég náttúrulega vinn að hluta til við að prófa nýjar snyrtivörur svo maður er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt sem maður elskar.“
Hvaða óþarfa keyptir þú þér síðast?
„Ég keypti mér enn einn kósýgallan um daginn. Mig vantar svo sannarlega ekki fleiri kósýgalla svo ég myndi alveg flokka þetta sem óþarfa kaup. Ég er alveg veik fyrir svona göllum, sérstaklega á þessum árstíma.“
Höfðaborg í Suður-Afríku er í miklu uppáhaldi hjá Rakel Maríu en þangað fór hún með kærasta sínum Ljósmynd/Aðsend
Hvað er á óskalistanum fyrir haustið?
„Mig langar ótrúlega mikið í einhver ný og flott stígvél, svona sem maður getur notað við allt. Ég er alltaf með augun opin fyrir þeim en hef ekki fundið þau réttu ennþá.“
Flott ný stígvél eru á óskalistanum hjá Rakel Maríu. Þessi leðurstígvél frá Giaborghini fást í Mathildu og kosta 99.900 kr
Áttu uppáhaldsborg og af hverju?
„Við Gummi erum mjög dugleg að ferðast á allskonar staði og það eru margar borgir sem ég held mikið upp á. Ég held ég verði að segja að Höfðaborg ef ég ætti að velja eina. Við tókum bæði ástfóstri við þessa borg þegar við fórum í Afríkureisu í byrjun þessa árs og vorum farin að skoða fasteignir þarna eftir nokkra daga. Þarna mætast sjórinn og fjöllin svo það er einhver magnaður kraftur þarna. Það er mikið um útivist og hreyfingu þarna, yndislegt fólk, góður matur og einhvernvegin allt til alls.“
Rakel María elskar kósígalla og á fjölmarga slíka. Þessi heimagalli er frá Ginu Tricot en buxurnar kosta 5.595 kr.
Hvert dreymir þig um að fara?
„Vá listinn er langur. Núna erum við að skoða að fara til Japan og Filippseyja og gera einhverja geggjaða ferð úr því. Mig langar samt ótrúlega mikið að skoða meira af Afríku og sérstaklega dýralífið þar, til dæmis dreymir mig um að fara í górilluleiðangur.“
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/17/1681733.jpg)








