Diljá Mist og Róbert farin hvort í sína áttina
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Diljá Mist Einarsdóttir, og Róbert Benedikt Róbertsson, fjármálastjóra hjá Icelandic Salmon AS, móðurfélagi Arnarlax ehf., hafa farið hvort í sína áttina.
Þetta staðfestir Diljá við Smartland. Diljá og Róbert eiga saman tvö börn.
Diljá Mist er lögfræðingur og hefur setið á Alþingi síðan 2021. Hún er varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Áður en hún fór inn á þing var hún aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarson þegar hann var utanríkisráðherra. Hún lauk lögfræðinámi við Háskóla Íslands, síðar LLM-prófi í alþjóðlegum umhverfis- og auðlindarétti og fékk hæstaréttarlögmannsréttindi árið 2018. 2011-2018 starfaði hún á lögmannstofunni Lögmáli.
Smartland óskar Diljá og Róberti góðs gengis í öldugangi lífsins!
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗