Siggi Bond fór á skeljarnar

Sigurður Gísli Bond og Birta Huld Hauksdóttir eru trúlofuð.

Sigurður Gísli Bond og Birta Huld Hauksdóttir eru trúlofuð. Ljósmynd/Instagram

Knattspyrnusérfræðingurinn Sigurður Gísli Bond og Birta Huld Hauksdóttir hársnyrtir eru trúlofuð. Sigurður fór á skeljarnar í útlöndum og sagði Birta já strax. 

„Hún sagði já,“ skrifaði Sigurður, eða Siggi eins og hann er kallaður, á Instagram. Með færslunni birti hann mynd af Birtu með fallega hring. Smartland greindi frá því í fyrra þegar parið var nýbyrjað saman. Nú hafa þau ákveðið að taka næsta skref í sambandinu. 

Birta Huld starfar sem hárgreiðslukona. Sigurður er fyrrum knattspyrnumaður sem lék meðal annars með FH í efstu deild. Hann hefur síðustu ár notið vinsælda í hlaðvarpsþáttum. Hann hefur til dæmis verið tíður gestur í hlaðvarpinu Dr. Football hjá Hjörvari Hafliðasyni.

Smartland óskar parinu til hamingju. 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅