Jóga Gnarr vildi ekki verða forsetafrú: „Ég var ekki alveg sátt“

Jóga Gnarr er gestur í hlaðvarpinu Marta María býður heim.

Jóga Gnarr er gestur í hlaðvarpinu Marta María býður heim.

Jóga Gnarr var ekki sérstaklega hrifin þegar eiginmaður hennar, Jón Gnarr, ákvað að bjóða sig fram til forseta Íslands. Hún segist hafa verið búin að kynna sér hvort hún gæti haldið áfram að búa í Vesturbænum þótt Jón flytti á Bessastaði. Þetta kemur fram í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Marta María býður heim. 

Jóga Gnarr hefur lengi verið konan á bak við tjöldin í lífi Jóns Gnarr og reyndar í lífi fleira fólks. Hún hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum hans í gegnum tíðina, hvort sem hann hefur verið leikari, borgarstjóri eða í stjórnmálum. Hún segist þó ekki hafa verið sérstaklega ánægð þegar hann ákvað að bæta forsetaframboði við dagskrána á sama tíma og hann var að leika í sjónvarpsþáttunum Felix og Klara.

„Ég var ekki alveg sátt sko,“ segir Jóga í viðtalinu.

Þegar Marta María spyr hvers vegna hún hafi verið ósátt svarar Jóga hreinskilnislega:

„Þú veist, ég bara, mig langaði ekki að vera forsetafrú.“

Ætlaði að vera áfram í Vesturbænum

Jóga lét þó ekki þar við sitja heldur fór að kanna hvernig lífið gæti orðið ef Jón næði kjöri. Hún hafði engan sérstakan áhuga á að flytja frá heimili þeirra í Vesturbænum og var því búin að kynna sér hvort hjónin gætu búið hvort á sínum stað.

„En ég var alveg búin að kynna mér þetta að, þú veist, ég mætti búa í Vesturbænum og hann gæti verið á Bessastöðum,“ segir Jóga.

Hún segist hafa lært af reynslunni að það sé best að vera við öllu búinn þegar Jón á í hlut.

„Ég áttaði mig á því í Besta flokknum, skilurðu? Það var ekki stefnan að taka við borginni í fjögur ár. Það var stefnan að stríða, sko.“

Þótt forsetaframboðið hafi ekki verið hennar hugmynd segir Jóga að þegar fjörið hafi farið af stað hafi hún ekki getað annað en tekið þátt.

„Þá er ég bara on“

Jóga lýsir lífi sínu gjarnan sem sirkus og segist elska að vera hluti af skemmtilegum verkefnum. Hún þurfi alls ekki alltaf að vera í aðalhlutverki, heldur skipti mestu máli að fá að taka þátt.

„En svo um leið og sirkusinn byrjar og stemningin og orkan og gamanið þá er ég bara „on“, þá bara tek ég þátt,“ segir hún.

Hún segist þá vera tilbúin að leggja á sig langa vinnudaga og sinna hverju því sem þarf að gera.

„Þó að það taki 12 tíma á dag. Þá hleyp ég bara með og geri allt svona. Sendi í póstkröfu einhverja forsetaboli eða pakka inn eða skúra eða baka kökur,“ segir hún.

Jóga segir að þetta hafi alltaf verið hennar nálgun. Í Leikfélagi Kópavogs hafi hún stundum verið í aðalhlutverki, stundum í aukahlutverki og stundum einfaldlega í miðasölunni.

„Það skiptir eiginlega engu máli hvað ég geri ef ég er með í sirkus,“ segir hún.

Var ekki í neinu uppnámi á kosninganótt

Þegar úrslit forsetakosninganna lágu fyrir og ljóst varð að Jón myndi ekki flytja á Bessastaði segist Jóga ekki hafa upplifað neitt sérstakt tilfinningauppnám.

„Já, það var allavegana, sko, ég bara, þú veist, ekkert drama. Hvorki hjá honum né mér. Ekki til sko,“ segir hún.

Hjónin hafa verið saman í rúmlega tvo áratugi og Jóga segir að húmorinn sé stór hluti af sambandi þeirra. Hún lýsir Jóni sem sálufélaga sínum og segir að þau hafi verið óvenju mikið saman í gegnum tíðina.

Þótt hún hafi ekki viljað verða forsetafrú hefur hún því tekið þátt í ýmsum ævintýrum eiginmannsins. Hún segir að mestu skipti að lífið sé skemmtilegt og að fólk leyfi sér að vera það sjálft.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Jógu Gnarr í heild sinni í hlaðvarpinu Marta María býður heim. Einnig er hægt að hlusta á hlaðvarpsvef mbl.is. 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅