Kvaddi Onlyfans og fór að lifa lífinu
Vikan var viðburðarík á Smartlandi. Marta María Winkel, fréttastjóri dægurmála mbl.is og höfundur Smartlands Mörtu Maríu, fór yfir fréttir vikunnar og tók saman allt það helsta.
Fyrrverandi heimili Baltasars og Sunnevu komin á sölu
Brian Jeffrey Gross fyrrverandi forstjóri Teya hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við Smáragötu 10 á sölu. Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel gerðu húsið upp á einstakan hátt.
Diljá Mist Einarsdóttir á lausu!
Greint var frá því í vikunni að Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins væri orðin einhleyp eftir að upp úr hjónabandi hennar slitnaði!
Kvaddi Onlyfans
Ísabella Klara Munroe er í toppmálum eftir að hún kvaddi Onlyfans og snéri sér að alvöru verkefnum.
Keypti 199 milljóna hæð!
Fótboltastjarnan Anthony Karl Gregory keypti sturlaða hæð miðsvæðis í Reykjavík ásamt kærustu sinni. Hann var eitt sinn stjúppabbi Nadinar Guðrúnar Yaghi fyrir þá sem voru búnir að gleyma því.
Rafrettukóngar keyptu raðhúsalengju!
Auður Rán Kristjánsdóttir forráðamaður félagsins A2411 ehf. hefur fest kaup á raðhúsalengju í Vogunum. Auður Rán er gift Snorra Guðmundssyni sem komst í fréttir eftir að hann og viðskiptafélagi hans, Sverri Þór Gunnarsson, oft kenndur við söluturninn Drekann, fengu skilorðsmundinn fangelsisdóm fyrir stórfelld tollalagabrot.
Auður Rán Kristjánsdóttir hefur fest kaup á raðhúsalengju í gegnum félag sitt. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is
Sigmundur Ernir hefði líklega misst bílprófið í ár!
Marta María Winkel rifjaði upp þegar Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar mætti ölvaður í pontu í ágúst 2009.
Góða helgi!
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



