Jóga um Björk: Erum sálufélagar
Jóga Gnarr og Björk Guðmundsdóttir hafa verið nánar vinkonur í um 40 ár. Vináttan hófst þegar Björk gekk inn í fataverslun Jógu, Skaparann, á meðan enn var verið að koma henni á laggirnar. Jóga segir í hlaðvarpinu Marta María býður heim frá einstökum vinskap þeirra, laginu sem Björk samdi um hana og ógleymanlegum fundi með Dalai Lama.
Jóga Gnarr, eiginkona Jóns Gnarr, hefur alla tíð kosið að vera fremur á bak við tjöldin en í sviðsljósinu. Hún hefur þó átt ævintýralegt líf og kynnst fjölmörgu heimsþekktu fólki, ekki síst fyrir tilstilli vinkonu sinnar, Bjarkar Guðmundsdóttur.
Þær kynntust þegar Jóga var að opna tískuverslunina Skaparann við Ingólfsstræti í Reykjavík árið 1987. Björk kom inn í verslunina áður en hún hafði formlega opnað.
„Hún kom í rauninni inn í búðina, í Skaparann, þegar ég var að setja hana upp,“ segir Jóga og rifjar upp að kassarnir hafi enn verið á gólfinu.
Það tók ekki langan tíma fyrir þær að ná saman.
„Við bara tengdumst einn, tveir og þrír, bara vinkonur sko,“ segir Jóga.
Keypti sérstök föt fyrir Björk
Vináttan þróaðist meðal annars í gegnum sameiginlegan áhuga á tísku og sköpun. Jóga segir að þegar hún fór utan til að kaupa inn fyrir verslunina hafi hún gjarnan haft Björk í huga.
„Þegar ég fór til útlanda að versla inn, þá keypti ég extra eitthvað fyrir hana,“ segir hún.
Hún hafi því ekki aðeins verið að velja fatnað fyrir viðskiptavini Skaparans heldur einnig sérstakar flíkur sem hún taldi að myndu henta vinkonu sinni.
Samband þeirra hefur haldist náið þrátt fyrir ferðalög og langar fjarvistir Bjarkar frá Íslandi. Jóga segir að þær hafi í gegnum tíðina haldið miklu sambandi í síma.
„Númer eitt erum við svona sálufélagar. Það er það sterkasta,“ segir Jóga.
„Ég er með lag ársins með mér“
Björk samdi lagið Jóga um vinkonu sína og gaf það út á plötunni Homogenic árið 1997. Lagið er eitt af þekktustu lögum Bjarkar og Jóga segir það eiga sérstakan stað í sögu vináttu þeirra.
Í viðtalinu rifjar hún upp skemmtilega sögu frá því þegar lagið hafði hlotið viðurkenningu sem lag ársins.
Þær vinkonur voru á leið út að skemmta sér og komu að Hótel Borg þar sem löng biðröð hafði myndast. Fólk í röðinni hvatti Björk til að fara fremst.
Björk tók Jógu með sér að dyrunum og ákvað að freista þess að nota lagið til að komast inn.
„Ætlarðu að hleypa okkur inn? Ég er með lag ársins með mér,“ sagði Björk við dyravörðinn, að sögn Jógu.
Tilraunin bar þó engan árangur.
„Við komumst ekki inn, skilurðu? En þetta var reynt,“ segir Jóga og hlær að minningunni.
Hún bætir við að henni hafi aldrei áður verið flaggað með þessum hætti til að komast inn á skemmtistað.
Björk dró hana á fund Dalai Lama
Vináttan hefur einnig leitt Jógu á óvenjulega staði. Hún segist hafa hitt fjölda þekktra einstaklinga í gegnum Björk, meðal annars tónlistarmennina Bono og Lenny Kravitz.
Eitt eftirminnilegasta ævintýrið var þó þegar Björk fékk hana með sér til New York til að hitta Dalai Lama.
Jóga segir að Björk hafi talið hana andlega þenkjandi og því viljað hafa hana með á fundinn. Sjálf hafi Jóga ekki verið sérstaklega spennt fyrir því að ferðast alla leið til Bandaríkjanna í aðeins tvo daga.
„Hún þurfti að hafa fyrir því af því ég ætlaði ekki að nenna í tvo daga til New York,“ segir Jóga sem lét til leiðast.
Þegar komið var á staðinn ákvað Jóga að rölta af stað með munkum sem hún sá fyrir utan húsið þar sem fundurinn átti að fara fram. Hún gleymdi sér svo við gönguna að hún var nærri búin að missa af sjálfum fundinum.
Þegar hún sneri aftur voru allir aðrir komnir inn.
Henni var réttur silkiklútur og hún send inn í herbergið rétt áður en Dalai Lama kom.
„Hvað ert þú með á bak við þig?
Að sögn Jógu hafði hún ekki fengið leiðbeiningar um tilgang silkiklútsins. Þegar Dalai Lama gekk á milli gesta og tók við klútum þeirra taldi hún að hann vildi losna við þá.
Hún ákvað því að fela sinn klút fyrir aftan sig.
Þegar Dalai Lama kom að henni setti hann nýjan klút um háls hennar eins og annarra gesta. Að athöfninni lokinni hafi hann hins vegar komið beint til hennar, skellihlæjandi.
„Hvað ert þú með á bak við þig?“ spurði hann, að sögn Jógu.
Hún dró þá fram klútinn sem hún hafði falið.
„Hann emjaði af hlátri og tók mig, dansaði með mig, kyssti mig og fagnaði mér,“ segir hún.
Jóga hafði ekki hugmynd um hvað hafði gerst fyrr en henni var síðar útskýrt að klúturinn sem gestirnir komu með táknaði óskir þeirra fyrir framtíðina. Dalai Lama átti að taka við honum og gefa þeim nýjan klút sem blessun.
Jóga hafði því óafvitandi sleppt mikilvægum hluta athafnarinnar.
Hún segir að hlýjan og húmorinn sem Dalai Lama sýndi henni hafi gert stundina ógleymanlega.
„Þessi saga sem er tugi ára gömul lifir enn inni í mér,“ segir Jóga.
Þótt Jóga hafi ferðast víða og hitt ótal þekkta einstaklinga er það þó vináttan sjálf sem hún leggur mesta áherslu á þegar hún talar um Björk.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Jógu Gnarr í hlaðvarpinu Marta María býður heim og á hlaðvarpsvef mbl.is.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗