Manstu þegar Gísli og Guðrún giftu sig eftir 27 ár?
Smartland varð 15 ára 5. maí. Af því tilefni hefur ritstjórn Smartlands tekið sig saman og tínt til gullmola síðustu 15 ára. Á þessum tímamótum er fjör að rifja upp allt þetta skemmtilega, fyndna og dusta rykið af öllu því sem við vorum öll löngu búin að gleyma.
Sjónvarpsstjarnan Gísli Einarsson gekk að eiga unnustu sína til 27 ára, Guðrúnu Huldu Pálmadóttur árið 2016. Athöfnin fór fram í kirkjunni á Borg og var það Hjálmar Jónsson sem gaf brúðhjónin saman. Gísli segir að þau hafi í raun ætlað að vera löngu búin að ganga í hjónaband en einhvern veginn hafi það dregist.
„Við kynntumst í Kaupfélaginu á Hofsósi í Skagafirði, þar sem við vorum bæði að vinna, haustið 1988. Við byrjuðum svo saman árið eftir og trúlofuðum okkur þá um haustið. Árið þar á eftir, 1990, eignuðumst við okkar fyrsta barn og svo tvö nokkru seinna,“ sagði sjónvarpsmaðurinn vinsæli í viðtali við Smartland fyrir tíu árum.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗