Instagram: „Barbie elskar samkvæmi“

Þótt frostið sé farið að bíta héldu landsmenn hitanum uppi á Instagram. Samsett mynd

Fyrsti vetrardagur gekk í garð um helgina og frostið er farið að færast yfir Frón. Á Instagram var þó ekki að sjá að hitinn væri á leið undir frostmark.

Spegill spegill segðu mér

Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, klæddi sig upp á í tilefni yfirvofandi hrekkjavöku. Hún deildi færslu á Instagram þar sem hún ásamt Eyþóri Wöhler fjöllistamanni skelltu sér í líki persóna úr Shrek.

Uppáhaldsárstíðin!

Kristín Pétursdóttir áhrifavaldur deildi nokkrum einstaklega hlýlegum myndum frá heimilinu en þetta er uppáhaldsárstíminn hennar.

Góður föstudagur

Þúsundþjalasmiðurinn, Unnur Borg Ólafsdóttir, birti færslu með mydnum frá góðum föstudegi. Þar má sjá hana meðal annars freista gæfunnar í spilakassa og skemmta sér konunglega með vinum.

Bæjarrölt!

Hekla Nína Hafliðadóttir listakona og áhrifavaldur rölti um bæinn með hundunum sínum tveimur.

Komin í búning!

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Sunneva Eir Einarsdóttir klæddi sig upp sem stórstjörnuna Lisu Rinnu og var æðisleg.

Lífið er fótbolti

Knattspyrnukonan knáa, Sveindís Jane Jónsdóttir, lét sitt ekki eftir liggja og deildi svipmyndum frá því sem á daga hennar hefur dregið undanfarið.

Speglasjálfusafn!

Leikkonan síkáta, Katla Njálsdóttir, gerði sér lítið fyrir og birti speglasjálfusafn ársins á dögunum. Þar kenndi til ýmissa grasa.

„Barbie elskar samkvæmi“

Lögmaðurinn, Diljá Helgadóttir, skellti sér út á lífið á dögunum og stoppaði jafnframt aðeins í Selfridges.

Bikiníbomba!

Áhrifavaldurinn Rósa Kristín deildi nokkrum sjóðheitum myndum frá eyjunni Mallorca sem hún heimsótti í sumar.

 Í sjóinn á Akureyri!

Guðmundur Emil Jóhannsson skellti sér í gusu og sjósund eftir tónlistarviðburð fyrir norðan. Hann er þakklátur! 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅