Móheiður og Theodór Elmar nýtt par

Móheiður Guðmundsdóttir og Theodór Elmar Bjarnason eru nýtt par.

Móheiður Guðmundsdóttir og Theodór Elmar Bjarnason eru nýtt par. Ljósmynd/Instagram

Ástin svífur yfir vötnum þessa dagana. Móheiður Guðmundsdóttir, leik- og söngkona, og Theodór Elmar Bjarnason, stuðningsfulltrúi og fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, birtu fallega mynd af sér um helgina á Instagram. Þetta er reyndar ekki fyrsta myndin sem birtist af þeim því þau mættu saman á opnun Þórdísar Lilju Samsonardóttur sem fram fór í Hannesarholti. 

Theodór Elmar Bjarnason og Móheiður Guðmundsdóttir eru sæt saman.

Theodór Elmar Bjarnason og Móheiður Guðmundsdóttir eru sæt saman. mbl.is/Karítas

Parið hnaut um hvort annað í sumar og hafa síðan þá verið óaðskiljanleg. Hann er fæddur 1987 og hún er fædd 1993. 

Theodór Elmar hefur átt farsælan feril sem knattspyrnumaður. Hann spilaði með Celtic, Lyn, IFK Göteborg, Randers og AGF. Svo flutti hann heim og var aðstoðarþjálfari KR en er nú stuðningsfulltrúi í Hagaskóla. Hann á tvö börn með tískubloggaranum og markaðsstjóra Sjáðu, Pöttru Sriyanonge. 

Móheiður hefur verið áberandi á sínu sviði, samið sviðshreyfingar og dansa og unnið mikið með Björk Guðmundsdóttur. 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅