„Þetta heldur mér ungri“

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir er gestur í hlaðvarpsþættinum Marta María býður heim. mbl.is/Marta María

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir hefur aldrei verið hrædd við að fara ótroðnar slóðir. Hún hefur byggt upp farsælan feril í lýtalækningum, eignast þrjú börn og látið drauma sína rætast. Hún var 48 ára þegar hún eignaðist yngsta barnið sitt en hún ræðir lífshlaupið í hlaðvarpsþættinum Marta María býður heim. 

„Ég var 48 þegar hún fæddist,“ segir Þórdís og rifjar upp að meðgangan hafi í raun verið ein sú auðveldasta sem hún hafði upplifað. Fyrir átti hún tvo syni með fyrri manninum sínum en þá tvo eignaðist hún á meðan hún var ennþá í læknisfræði.  

„Þarna var ég komin á einhvern stað í lífinu sem ég vissi hvar ég ætlaði að vera,“ segir hún og bætir við að það hafi verið mikil hamingja að eignast dótturina.

Það eru þó ýmsir fylgifiskar þess að eignast barn 48 ára. Börnin á leikskólanum héldu stundum að Þórdís væri amma dóttur sinnar. Hún segir að það hafi vissulega fylgt því áskoranir að eignast barn á þessum aldri. Hún hafi þó aldrei séð eftir ákvörðuninni og segir samband þeirra mæðgna afar náið.

„En það er áskorun að eiga barn svona seint, það er það og ég, en mér finnst svona að einhverju leyti heldur þetta mér ungri,“ segir hún.

Vill ekki sjá eftir neinu

Þórdís hefur ekki aðeins látið til sín taka á sviði lýtalækninga heldur hefur tónlistin fylgt henni alla ævi. Hún lærði á píanó í 14 ár, stundaði söngnám og söng í kórum áður en hún hélt til Frakklands í sérnám í lýtalækningum.

Þar tók tónlistaráhuginn á sig nýja mynd þegar hún fór að syngja með djasshljómsveit. Hún rifjar upp hvernig hún gat lokið löngum vinnudegi á skurðstofunni og haldið beint á svið um kvöldið.

„Það er ástríða mín að syngja,“ segir Þórdís og bætir við að það sé aðeins bónus ef öðrum finnist gaman að hlusta.

Nú hefur hún látið gamlan draum rætast og gefið út plötuna Heimkoma, sem finna má á Spotify. Hún segist ekki stefna að því að verða fræg söngkona heldur hafi hana einfaldlega langað að láta verða af þessu.

„Mig langar ekki að fara og kveðja þennan heim og segja: Ég ætlaði alltaf.“

Hún segir nafnið á plötunni hafa komið til sín þegar hún áttaði sig á því hversu lengi tónlistin hafði blundað innra með henni.

„Núna fannst mér allt í einu hjartað vera komið heim.“

Í þættinum ræðir Þórdís einnig æsku sína í Fossvoginum, stormasaman skilnað foreldra sinna, erfiða reynslu þegar sonur hennar fæddist með stóran fæðingarblett og hvernig sú reynsla hafði áhrif á ákvörðun hennar um að verða lýtalæknir.

Þegar Marta María spyr hana í lok þáttar hvað hún hefði viljað vita þegar hún var tvítug stendur ekki á svarinu:

„Lífið er bara gott. Og fólk á fylgja alltaf hjartanu.“

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is, á Apple Podcasts og Spotify: 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅