„Ég myndi gera öll börnin mín skuldlaus“
Hvað myndir þú gera ef þú ynnir 100 milljónir króna? Smartland fór á stúfana í Mjóddinni og spurði gesti og gangandi hvernig þau myndu verja peningunum ef stóri vinninguþeirn félli þeim í skaut.
Fjölskyldan var mörgum ofarlega í huga og hugmyndirnar fjölbreyttar. Hjá einum viðmælanda yrði fyrsta skrefið að gleðja soninn:
„Það fyrsta sem ég myndi gera er að kaupa rafmagnshjól fyrir guttann þannig að hann myndi hætta að væla.“
Vildu gleðja börnin
Utanlandsferð fyrir fjölskylduna var meðal þess sem fólk sá fyrir sér að verja vinningnum í. Aðrir vildu gefa börnunum sínum peninga eða leggja fyrir til framtíðar þeirra.
„Ég myndi gera öll börnin mín skuldlaus. Ég myndi kaupa mér gleði með því,“ sagði einn viðmælandi.
Ferðalög, nýr bíll og íbúð voru einnig á óskalistanum á meðan aðrir sáu fyrir sér að nýta vinninginn til að greiða inn á íbúðarlán.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗