Samstöðin rak fjölmiðlastjörnu á meðan aðrir létu peningana vinna

Vikan var viðburðarík á Smartlandi. Marta María Winkel, fréttastjóri dægurmála mbl.is og höfundur Smartlands Mörtu Maríu, fór yfir fréttir vikunnar og tók saman allt það helsta.

Fjölmiðlastjarna fékk uppsagnarbréf

Fjölmiðlastjörnunni Maríu Lilju Ingveldar-Þrastardóttur Kemp hefur verið sagt upp á Samstöðinni. Þessu greinir hún frá á félagsmiðlum. Hún ætlar þó ekki að láta þetta sökkva sér og hyggst byrja með hlaðvarp. 

María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp fékk uppsagnarbréf frá Samstöðinni.

María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp fékk uppsagnarbréf frá Samstöðinni. mbl.is/Birta Margret Björgvinsdottir

Lifir drauminn í Lundúnum 

Vigdís Hafliðadóttir komst inn í nám og lifir nú sínu besta lífi í stórborginni. 

Vigdís Hafliðadóttir er flutt til Lundúna.

Vigdís Hafliðadóttir er flutt til Lundúna. mbl.is/Ásdís

Veisla í Lundi!

Björg Hildur Daðadóttir festi kaup á glæsilegu raðhúsi í Lundi í Kópavogi. Innherjaupplýsingar segja að þetta sé ein besta gatan í Kópavogi og að félagslíf sé yfir hámarki. 

Björg Hildur Daðadóttir festi kaup á raðhúsi í Lundi.

Björg Hildur Daðadóttir festi kaup á raðhúsi í Lundi. Samsett mynd

Að láta peningana vinna fyrir sig! 

Spesía hélt glæsilegt boð í Sjávarklasanum þar sem allir helstu Jóakimar Íslands hittust og fögnuðu. 

Sandra, Georg, Rún, Bergur Ebbi og

Sandra, Georg, Rún, Bergur Ebbi og Samsett mynd

Sjóvá kann að halda partí! 

Ef þú ert tjónlaus þá rignir yfir þig peningum ef þú tryggir á réttum stað! 

Bogi Nils Bogason, Björt Ólafsdóttir og Björk Unnarsdóttir.

Bogi Nils Bogason, Björt Ólafsdóttir og Björk Unnarsdóttir. Ljósmynd/Hulda Margrét Ólafsdóttir

Keypti íbúð á flottum stað! 

Telma Fanney Magnúsdóttir keypti íbúð í Garðabænum eftir að upp úr sambandi hennar og Jökuls Júlíussonar slitnaði. 

Góða helgi! 

Telma Fanney Magnúsdóttir hefur fest kaup á íbúð í Garðabæ.

Telma Fanney Magnúsdóttir hefur fest kaup á íbúð í Garðabæ. Samsett mynd

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅