„Ég veit aldrei hvert lífið tekur mig“
Rúrik Gíslason hefur í nógu að snúast þótt Iceguys séu að syngja sitt síðasta. Hann lauk nýverið tökum á þýskri kvikmynd og fram undan eru 25 danssýningar víðs vegar um Þýskaland.
Á milli verkefna nýtur hann lífsins á Spáni, þar sem hann hefur nú komið sér fyrir.
„Ég veit aldrei hvert lífið tekur mig,“ segir Rúrik í samtali við Smartland.
Undanfarna tvo mánuði hefur hann verið við tökur á kvikmyndinni en næst tekur við mánaðarlöng sýningarferð um Þýskaland. Að henni lokinni heldur hann heim til Íslands, þar sem Iceguys koma fram í síðasta sinn í Laugardalshöll 12. desember.
„Það er allavega nóg fram undan og svo er eitthvað á borðinu sem ég þarf að skoða, en það kemur í ljós,“ tekur hann fram.
Hamingjusamur á Spáni
Verkefni Rúriks eru gjarnan unnin í törnum og leiða hann víða. Hann hefur nú flutt til Spánar og segir sér líða mjög vel þar. Íslenska veðrið berst í tal þegar hann ræðir ákvörðunina.
„Nú sitjum við hérna í gulri viðvörun, ef svo má segja. Þannig að ég ákvað að mér væri betur borgið á Spáni.“
Þótt hann sé ánægður með lífið á suðrænum slóðum útilokar hann ekki að snúa aftur til Íslands og festa hér rætur.
„Nú hef ég ekki búið á Íslandi í einhver 22 ár og Ísland er náttúrulega heima. Mögulega, ef ég eignast börn, þá langar mig að sýna þeim hvernig það er að alast upp á Íslandi. En eins og er þá er ég mjög hamingjusamur á Spáni.“
Hittir fjölskylduna oftar
Flutningurinn hefur einnig haft óvænt áhrif á samskiptin við fjölskylduna. Rúrik segist hitta hana oftar og heyra meira í henni eftir að hann flutti til Spánar.
Flutningur heim er því ekki á döfinni að sinni en Rúrik lokar ekki á þann möguleika.
„Kannski einhvern tímann í framtíðinni.“
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗