Maron Birnir flexar nýjasta flúrinu

Tónlistarmaðurinn Maron Birnir kom eins og stormsveipur inn í íslenska tónlistarsenu og stendur nú á miklum tímamótum, en fyrsta breiðskífa hans, Í fyrsta sinn, kemur út á öllum helstu streymisveitum í dag, föstudaginn 30. október. Maron Birnir hefur unnið að plötunni í rúmt ár og segir útgáfuna hafa dregist nokkuð á langinn, eins og gengur og gerist þegar vanda á til verka. 

Af þessu tilefni ákvað hann að marka tímamótin á heldur óvenjulegan hátt með því að láta flúra titil plötunnar á magann á sér — varanlega. Titillinn Í fyrsta sinn er jafnframt heiti eins lagsins á plötunni en Maron segir nafnið hafa þótt viðeigandi þar sem um fyrstu breiðskífu hans er að ræða.

Maron Birnir er gestur Ásthildar Hannesdóttur í Dagmálum. Í þættinum ræðir hann meðal annars um nýju plötuna, sköpunarferlið, tónlistarferilinn og framtíðaráformin. 

Ungi tónlistarmaðurinn Maron Birnir hefur verið að gera það gott í tónlistarheiminum að undanförnu. Samsett mynd/mbl.is/Hallur Már

Aldrei þurft að pæla í jafnmiklu

Maron Birnir viðurkennir að sköpunar- og útgáfuferlið hafi reynst mun umfangsmeira en hann gerði sér grein fyrir í upphafi. Auk tónlistarsköpunarinnar þurfi að huga að ótal öðrum þáttum, svo sem markaðssetningu, kynningarstarfi og viðtölum.

„Þetta er svo langt og erfitt ferli sko. Maður fattar það einhvern veginn ekki,“ segir Maron og bætir við:

„Ég hef aldrei þurft að pæla í svona miklu í lífinu mínu.“

Þrátt fyrir það lætur hann engan bilbug á sér finna. Þó segist hann ætla að taka sér nokkurra vikna hvíld frá tónlistarsköpuninni, að minnsta kosti fram að áramótum, áður en hann snýr sér að því að semja meira.

„Mig langar ekki að það sé langt í næstu en mig langar að taka mér smá hvíld,“ segir hann um mögulega útgáfu annarrar breiðskífu.

Gangandi listaverk

Líkt og áður sagði ákvað hann að gera fyrstu plötuútgáfuna ógleymanlega með því að láta flúra heiti hennar á magann á sér. Hann segir húðflúrið hafa táknræna merkingu enda sé fyrsta platan sérstakur áfangi í lífi tónlistarmanns.

Aðspurður hvort hann ætli að láta flúra titla allra framtíðarplatna sinna á líkamann segir hann það ólíklegt.

„Nei, ég held þetta er bara fyrsta platan. Það er einhvern veginn táknrænt sko,“ segir Maron Birnir þegar hann er spurður út í hvort titlar allra breiðskífa framtíðarinnar komi til með að fá að skreyta líkama hans. en hann er nú þegar kominn með nokkur húðflúr sem hafa fyrir hann sérstaka merkingu.

Hver flúraði þig?

„Brynjar. Ég fer alltaf til hans. Það er kóngurinn,“ segir Maron Birnir sem er nú þegar kominn með nokkur húðflúr sem hafa fyrir hann sérstaka merkingu.

„Hann flúraði mig alveg hérna og svo er ég með Tónhyl tattúið hérna, mömmu hérna, og já, svo eitthvað meira hérna,“ lýsir hann og er ófeiminn við að sýna húðflúr sín. 

Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að nálgast viðtalið við Maron Birni í heild sinni:

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅