Sakar meirihluta menntaráðs um að nota ChatGPT til að eigna sér heiður - „Algjörlega óritskoðuð frá gervigreindinni“

Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Kópavogi, sakar meirihluta menntaráðs í Kópavogi um að eigna sér mál minnihlutans og að hafa í þeirri tilraun sinni nýtt sér gervigreindina ChatGPT. Þetta kemur fram í grein sem Einar birti hjá Vísi í dag.

Ritdeildurnar, ef svo mætti kalla, snúast um snjalltækjanotkun í skólastarfi í Kópavogi. Meirihluti menntaráðs birti grein í gær og furðaði sig þar á tillögu frá Samfylkingunni um að notkun snjalltækja yrði endurskoðuð og fullyrti að slíkt væri þegar í farvegi að frumkvæði meirihlutans. Af greininni mátti ráða að meirihluta menntaráðs væri umhugað um að koma því á framfæri að meirihlutinn ætti þessa hugmynd, þeirra útfærsla væri betri en Samfylkingarinnar og væri þegar í vinnslu. Fyrirsögn greinarinnar var: Takk fyrir stuðninginn, samvinna er lykill að árangri.

Einar skrifar í sinni grein, sem ber fyrirsögnina: Takk fyrir stuðninginn, ChatGPT, að Miðflokkurinn hafi síðan í vor varað við hættulegri vegferð menntamála í Kópavogi sem hafi einkennst af óhóflegri notkun á spjaldtölvum. Eins hafi Miðflokkurinn varað við því að nám barna yrði „gervigreindarvætt“ og að til stæði að kenna 6 ára börnum ábyrga notkun gervigreindar í námi.

„Af grein meirihluta menntaráðs að dæma væri kannski ráðlegra að þeir sæktu námskeið um ábyrga notkun gervigreindar áður en þeir gera tilraun til þess að kenna börnum Kópavogs á hana, enda virðist greinin hafa ratað algjörlega óritskoðuð frá gervigreindinni inn á Vísi.“

Einar telur það vísbendingar um notkun gervigreindar við skrif greinarinnar að þar er hann sjálfur kallaður formaður Miðflokksins, en það mun enn vera Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sem gegnir þeirri stöðu, og svo merkingarlausir frasar eins og „skólastarf er ekki pólitísk fyrirsögn“.

„Einnig er millifyrirsögn sem segir að „skólastarf er ekki pólitísk fyrirsögn“ sem hefði allt eins getað sagt „bókasafn er ekki pólitísk fyrirsögn“, svona ef við erum bara að lista upp augljósar staðreyndir.“

Hann bendir svo á mótsögn í fyrirsögn og efni greinarinnar. Fyrirsögnin tali um mikilvægi samvinnu en í greininni sjálfri sé framlag meirihlutans upphafið og lítið gert úr framlagi minnihlutans. Áhyggjur af spjaldtölvunotkun í skólastarfi komi skýrt fram í ítarlegri skýrslu sem var unnin um innleiðinguna. Frekar en að mæta þeim áhyggjum strax með því að draga úr notkun snjalltækja eigi að fara enn og aftur í rannsóknarvinnu sem Einar óttast að sé bara ætlað að komast að fyrir fram ákveðinni niðurstöðu. Það sem honum þykir verra er að samhliða er stefnt að því að kanna nýtingu gervigreindar í námi.

Miðflokkurinn mun styðja alla vinnu sem dregur úr skjánotkun í skólum, sérstaklega hvað varðar aukna áherslu á blað og blýant og kennslu um ábyrga notkun snjalltækja.

„Því miður stefnir þó í að markmið hópsins sé raunverulega að leita að fyrir fram ákveðnum niðurstöðum sem á að fagna með fréttatilkynningum frá Kópavogsbæ sem meirihlutinn hefur skrifað með gervigreind.

Mér þótti við hæfi að lokum að láta gervigreindinni eftir lokaorðin við skrifum meirihlutans:

Takk fyrir stuðninginn sömuleiðis – samvinna er lykill að árangri, en sjálfstæð hugsun er ekki síður mikilvæg á vegferð okkar inn í framtíðina.“

Umrædd skýrsla um spjaldtölvunotkun í grunnskólum Kópavogs kom út í mars árið 2023. Þar voru dregnar fram margar jákvæðar hliðar en hvað áskoranir varðaði nefndu nemendur, foreldrar og kennarar að truflun af spjaldtölvunotkun eða að nemendur eyði of miklum tíma í tölvunni væri stórt vandamál. Unglingar sögðu erfitt að einbeita sér í námi þar sem þeir vildu gera eitthvað annað í spjaldtölvunni og myndsendingar nemenda þóttu stundum talsvert vandamál. Skýrsluna má finna hér. 
 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab