Bretinn á ráspól í Madríd
Lando Norris, ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 og ökumaður McLaren, verður á ráspól í kappakstrinum í Madríd á morgun.
Um er að ræða fyrsta Formúlu 1-kappaksturinn sem fram fer á nýrri braut í borginni.
Norris var fljótastur allra í tímatökunum í dag og ræsir fyrstur á morgun. Kimi Antonelli hjá Mercedes, sem leiðir stigakeppni ökuþóra, varð annar.
Max Verstappen hjá Red Bull Racing varð þriðji í tímatökunum. Ferrari-mennirnir Lewis Hamilton og Charles Leclerc koma svo næstir í fjórða og fimmta sæti. George Russell, liðsfélagi Antonelli hjá Mercedes, varð sjötti.
Búist er við spennandi keppni í Madríd en brautin þykir krefjandi og verður hún nú tekin í notkun í fyrsta sinn fyrir kappakstur í Formúlu 1.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/66/68/1666896.jpg)