Getur minnkað forskot Ítalans

George Russell verður á ráspól á morgun.

George Russell verður á ráspól á morgun. AFP/Andrej Isakovic

George Russell ræsir fremstur í Aserbaídsjankappakstrinum í Formúlu 1 á morgun eftir sannfærandi sigur í tímatökunni í dag.

Russell hafði nokkra yfirburði og var 0,8 sekúndum hraðari en Charles Leclerc á Ferrari sem varð annar.

Oscar Piastri hjá McLaren ræsir í þriðja sæti og Isack Hadjar hjá Red Bull fjórði.

Kimi Antonelli, sem er með 81 stigs forskot í keppni ökuþóra, klessti bíl sinn í fyrsta hluta tímatökunnar og ræsir því á meðal öftustu manna.

Russell er í öðru sæti í þeirri baráttu og getur minnkað forskot liðsfélaga síns með vel heppnuðum kappakstri á morgun.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅