Bretinn setur pressu á liðsfélagann
Breski ökuþórinn George Russell bar sigur úr býtum í kappakstrinum í Aserbaídsjan í Formúlu 1 í dag.
Þetta er þriðji sigur Russell, sem keyrir fyrir Mercedes, á tímabilinu en hann vann einnig ástralska og austurríska kappaksturinn.
Russell byrjaði á ráspól og tókst að halda efsta sætinu alla keppnina þrátt fyrir mikla pressu frá Hollendingnum Max Verstappen undir lokin.
Verstappen, sem keyrir fyrir Red Bull, endaði í öðru sæti og liðsfélagi hans Isack Hadjar var þriðji.
Ferrari-maðurinn Charles Leclerc hafnaði í fjórða sæti og Andrea Kimi Antonelli, liðsfélagi Russell, endaði í fimmta sæti. Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton endaði í sjötta sæti.
Antonelli er áfram á toppnum í keppni ökuþóra með 302 stig en Russell er í öðru sæti með 236 stig. Hamilton situr í þriðja sæti með 199 stig.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗