Á ráspól í fyrsta sinn
Hollendingurinn Max Verstappen, sem keyrir fyrir Red Bull, mun ræsa fremstur í Barein-kappakstrinum sem fer fram í Malasíu vegna stríðsátaka í Íran.
Þetta er fyrsti ráspóll Verstappen á tímabilinu en hann var fljótastur allra í tímatökunum á tímanum 1:35,130.
Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari, mun byrja annar og Isack Hadjar, liðsfélagi Verstappen, er sá þriðji.
Kimi Antonelli, sem leiðir heimsmeistaramót ökuþóra, mun ræsa fjórði og Charles Leclerc, sem keyrir fyrir Ferrari, mun hefja keppni í fimmta sæti.
McLaren-mennirnir Lando Norris og Oscar Piastri ræsa sjötti og sjöundi og George Russell, ökuþór Mercedes, mun byrja áttundi.
Bareinski-kappaksturinn fer fram í fyrramálið klukkan 7.00 að íslenskum tíma.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗