Loks vann Verstappen
Hollendingurinn Max Verstappen, sem keyrir fyrir Red Bull, vann í Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 í Sepang í Malasíu í morgun.
Keppnin var skrautleg en hún hófst ekki fyrr en einum og hálfum tíma eftir áætlun.
Þetta er fyrsti sigur Verstappen á tímabilinu en hann er fjórfaldur heimsmeistari.
Ítalinn ungi Kimi Antonelli, sem ekur fyrir Mercedes, varð annar og Bretinn Lewis Hamilton, sem ekur fyrir Ferrari, þriðji.
Antonelli er í toppsætinu með 320 stig, 84 stigum meira en liðsfélagi hans George Russell, þegar sjö kappakstrar eru eftir.
Keppnin átti að fara fram í Barein í apríl en var færð til Malasíu vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗