Hjólar á milli keppna í Formúlu 1

Íþróttir | Formúla 1 | mbl | 5.10.2026 | 19:15 | Uppfært 6.10.2026 11:57

Valtteri Bottas er lítið fyrir einkaþotur og meira fyrir hjól.

Valtteri Bottas er lítið fyrir einkaþotur og meira fyrir hjól. AFP/Lillian Suwanrumpha

Finnski ökuþórinn Valtteri Bottas, sem keppir fyrir Cadillac í Formúlu 1, notar ekki aðeins ökutæki sem ferðamáta.

Bottas er einnig mikill hjólagarpur, svo mikill að hann er langt kominn með að hjóla frá Malasíu til Singapúr.

Síðasta keppni í Formúlu 1 fór fram í Sepang í Malasíu og sú næsta fer fram í Singapúr og ákvað Bottas að hjóla á milli keppna.

Hinn 37 ára gamli Bottas er enn stigalaus í formúlunni í ár en Cadillac er nýliði í ár. Hann náði öllu betri árangri þegar hann keyrði fyrir Mercedes á sínum tíma.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅