Fékk ellefu milljarða eftir brottreksturinn
Íþróttir | Formúla 1 | mbl | 8.10.2026 | 23:00 | Uppfært 9.10.2026 12:13
Christian Horner, fyrrverandi framkvæmdastjóri og liðsstjóri Red Bull í Formúlu 1, fékk ótrúlega upphæð þegar honum var vikið frá störfum síðasta sumar.
Ársreikningar liðsins hafa verið gefnir út og þar kemur fram að Horner hafi fengið 67 milljónir punda í eingreiðslu eftir uppsögnina.
Það gera rúma ellefu milljarða íslenskra króna. Horner átti sex ár eftir af samningi sínum við Red Bull og þurfti félagið að greiða upp samninginn.
Var honum sagt upp ári eftir að hann var ásakaður um óviðeigandi hegðun í garð kvenkyns samstarfsfélaga, sem hann neitaði alla tíð.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗