Albert og félagar tróna á toppnum
Lazio hafði betur gegn Parma, 2:1, í 8. umferð A-deildar Ítalíu í knattspyrnu í kvöld.
Lazio hefur farið ótrúlega vel af stað þar sem liðið situr í efsta sæti deildarinnar með 22 stig og hefur liðið unnið sjö leiki og gert eitt jafntefli.
Albert var ekki með í dag þar sem hann er enn þá frá vegna meiðsla eftir að hann fór af velli í leik íslenska landsliðsins gegn Eistlandi.
Það kom þó ekki að sök í dag þar sem Lazio sótti sannfærandi sigur þar sem Kenneth Taylor skoraði fyrsta mark liðsins á 51. mínútu og stuttu seinna skoraði leikmaður Parma sjálfsmark.
Parma klóraði í bakkann á fimmtu mínútu uppbótartíma.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗