Nálgast heimsmeistaratitilinn óðfluga
Kimi Antonelli nálgast óðum að verða yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1 eftir öruggan sigur í bandaríska kappakstrinum í Austin í Texas.
Þetta var níundi sigur hins tvítuga Mercedes-ökumanns á tímabilinu.
Antonelli kom í mark 13 sekúndum á undan Charles Leclerc á Ferrari, sem varð annar, en Max Verstappen á Red Bull hafnaði í þriðja sæti. Lewis Hamilton varð fjórði og liðsfélagi Antonellis, George Russell, endaði í áttunda sæti.
Antonelli er nú með 365 stig og er með 123 stiga forskot á Russell og 124 stig forskot á Hamilton þegar aðeins 125 stig eru eftir í boði á tímabilinu.
Ítalinn sem varð tvítugur í ágúst og er á sínu öðru tímabili í Formúlu 1, gæti þar með tryggt sér titilinn þegar fjórar keppnir eru eftir af tímabilinu.
Hann hafði mikla yfirburði í kappakstrinum í kvöld og þurfti aðeins einu sinni að aka inn á þjónustusvæði, á meðan helstu keppinautar hans gerðu það tvisvar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗