Nýjar upplýsingar í kossamálinu

Stjórnendur Hagaskóla hafa sent annað bréf vegna málsins.

Stjórnendur Hagaskóla hafa sent annað bréf vegna málsins. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Skólastjórnendur í Hagaskóla munu bjóða þeim börnum sem urðu vitni að umtöluðu atviki í skólanum í gær upp á samtal ef þau eða foreldrar þeirra óska þess. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Sigríður Nanna Heimisdóttir skólastjóri sendi forráðamönnum barna í skólanum nú síðdegis.

Í póstinum segir að skólinn harmi að umrætt atvik hafi átt sér stað. Eins og kom fram á mbl.is í gær urðu nemendur vitni að atlotum tveggja starfsmanna í skólanum í gær. Myndir og myndbönd af atvikinu hafa gengið manna á milli síðasta sólarhringinn.

„Í ljósi nýrra upplýsinga sem skólastjórnendum hafa borist, svo sem mynda, viljum við árétta að skólinn lítur málið alvarlegum augum.

Skólinn harmar að þetta atvik hafi átt sér stað og mun vinna að úrlausn þessa viðkvæma máls samkvæmt verkferlum,“ segir í pósti Sigríðar Nönnu.

„Eðli málsins samkvæmt verður ekki farið ofan í málsatvik heldur verður málið unnið áfram með hlutaðeigandi og mannauðsþjónustu skóla- og frístundasviðs.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab