Róbert setti skólamet í Bandaríkjunum
Róbert Leó Arnórsson, kylfingur GKG, náði frábærum árangri á Ryan T. Lee Memorial Collegiate-mótinu í Bandaríkjunum um síðustu helgi.
Hann varð þriðji af 90 keppendum og lauk mótinu á sex höggum undir pari eftir hringi upp á 73, 65 og 69 högg.
Róbert leikur fyrir Manhattan University. Á öðrum hring mótsins lék hann á 65 höggum, sex höggum undir pari og var skollalaus.
Samkvæmt skólanum er það lægsta skor sem kylfingur úr golfliði Manhattan hefur leikið á einum hring.
Róbert fylgdi því eftir með 69 höggum á lokahringnum og lauk mótinu á sex höggum undir pari.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗