Bandaríkin sneru taflinu við á ótrúlegan hátt

Scottie Scheffler og Jacob Bridgeman fallast í faðma eftir sigur Bandaríkjamanna. AFP/Michael Reaves

Jacob Bridgeman tryggði Bandaríkjunum sigurinn í Forsetabikarnum í golfi í kvöld en liðið átti stórleik í dag og vann upp þriggja stiga forskot Alþjóðaliðsins.

Bandaríkin unnu að lokum 17:13 á Medinah og tryggðu sér þar með ellefta sigur sinn í röð í Forsetabikarnum.

Bandaríkjamenn voru þremur stigum á eftir þegar komið var að holukeppninni í dag. Bandaríkjamenn þurftu að ná í átta stig úr síðustu 12 leikjunum til að forðast sitt fyrsta tap í keppninni frá árinu 1998. Liðið svaraði með glæsibrag og vann 9,5 stig á lokadeginum.

Cameron Young, Justin Thomas og Scottie Scheffler, sem er efstur á heimslistanum, færðu Bandaríkjunum snemma stig. Tom Kim og Sungjae Im svöruðu fyrir Alþjóðaliðið og héldu lífi í voninni um fyrsta sigur liðsins á bandarískri grundu.

Sigrar Chris Gotterup, Patrick Cantlay og Collin Morikawa komu Bandaríkjunum yfir á ný. Jackson Koivun tryggði síðan stig og þar með að Alþjóðaliðið gæti ekki lengur unnið keppnina, en Xander Schauffele hafði þá þegar tryggt að minnsta kosti hálft stig gegn Ryan Fox.

Bridgeman tryggði Bandaríkjunum svo sigurinn með eftirminnilegum hætti. Hann var einu höggi undir þegar þrjár holur voru eftir gegn Min Woo Lee en sneri leiknum sér í hag og tryggði sér sigur á lokaholunni.

Þar með lauk mesta viðsnúningi á lokadegi í sögu Forsetabikarsins og mikill fögnuður braust út hjá bandaríska liðinu.

Jacob Bridgeman.

Jacob Bridgeman. AFP/Michael Reaves

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅