Metið á 31 milljarð á Íslandi

Golf er gríðarlega vinsælt á Íslandi.

Golf er gríðarlega vinsælt á Íslandi. mbl.is/Ólafur Árdal

Samfélagslegt virði golfíþróttarinnar á Íslandi er metið á 31,22 milljarða króna á ári samkvæmt nýrri greiningu sem Golfsamband Íslands kynnti á málstofu í samstarfi við KPMG.

Niðurstöðurnar sýna að ávinningur samfélagsins er um tvöfaldur á við þá 15,7 milljarða króna sem varið er til íþróttarinnar. Áætlað er að golfiðkun spari ríkinu um fjóra milljarða króna í heilbrigðiskostnaði.

Greiningin byggir á aðferðafræði samfélagslegrar arðsemi fjárfestinga, SROI. Með henni er leitast við að meta áhrif golfíþróttarinnar á heilsu, líðan og félagslega þátttöku í fjárhagslegu samhengi. Verkefnið var unnið á vegum GSÍ, Finnish Society of Sport Sciences og KPMG.

Samkvæmt gögnum sem kynnt voru með greiningunni hreyfðu kylfingar 19 ára og eldri sig að meðaltali í 310 mínútur á viku við golfiðkun á tímabilinu maí til ágúst 2025.

Það er umfram viðmið um 150-300 mínútna hreyfingu á viku fyrir fullorðna. Þátttaka í golfi helst jafnframt sterk með hækkandi aldri, sem gerir íþróttina að mikilvægum kosti þegar hugað er að virkni og heilsu eldri kynslóða.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅