Tveir Íslendingar á meðal tíu efstu
Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson enduðu báðir á meðal tíu efstu á Folksam Championship-mótinu í Svíþjóð sem lauk á föstudaginn.
Dagbjartur varð jafn í fjórða sæti á átta höggum undir pari og Hlynur jafn í tíunda sæti á fimm höggum undir pari.
Dagbjartur lék lokahringinn á 71 höggi, tveimur undir pari. Hann var jafn í fjórða sæti fyrir hringinn og hélt því sæti sínu með spilamennsku dagsins.
Dagbjartur lék fyrsta hringinn á 68 höggum og annan hringinn á 72. Hann deildi fjórða sætinu með Svíunum Oliver Lilliedahl og Albin Tidén. Árangurinn jafnar besta árangur hans á mótaröðinni í sumar.
Hlynur fór inn í lokahringinn jafn í efsta sæti ásamt Tidén og Finnanum Oskari Nikku. Hann hafði leikið fyrstu tvo hringina á 69 og 70 höggum og var þá sjö höggum undir pari. Lokahringinn lék hann á 75 höggum, tveimur yfir pari, og lauk mótinu á 214 höggum.
Svíinn Algot Kleén vann mótið á 13 höggum undir pari. Lokahringur upp á átta högg undir pari tryggði honum sigur með tveggja högga mun.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
