Mosfellingar í 13. sæti á EM
Kvennasveit Golfklúbbs Mosfellsbæjar endaði í 13. sæti á Evrópumóti golfklúbba, European Ladies’ Club Trophy, sem lauk á laugardaginn.
Leikið var á Falkenstein-vellinum í Hamborg í Þýskalandi en 19 sveitir tóku þátt.
GM lék á 40 höggum yfir pari en tvö bestu skor liðsins töldu á hverjum keppnisdegi. Liðið var í 11. sæti eftir fyrsta keppnisdag.
Arna Rún Kristjánsdóttir, Kristín Sól Guðmundsdóttir og Katrín Sól Davíðsdóttir skipuðu sveit GM. Arna Rún lék best þeirra, en hún endaði á tólf höggum yfir pari. Hún lék hringi sína á 71, 78 og 76 höggum og endaði í 25. sæti einstaklingskeppninnar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/24/1682448.jpg)