Embla fremst Íslendinganna í Kanada

Lið Íslands í Kanada.

Lið Íslands í Kanada. Ljósmynd/GSÍ

Íslenska stúlknalandsliðið í golfi lauk keppni í 23. sæti á heimsmeistaramóti stúlknalandsliða 2026. Mótið fór fram á Brampton Golf Club í Ontario í Kanada dagana 30. september til 3. október.

Fyrir hönd Íslands léku Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, og Lilja Maren Jónsdóttir, GA. Andri Þór Björnsson, aðstoðarafreksstjóri GSÍ, var með hópnum í Kanada.

Ísland lauk mótinu á samtals 48 höggum yfir pari. Tvö bestu skor liðsins á hverjum hring töldu í mótinu.

Embla Hrönn náði bestum árangri íslensku keppendanna í einstaklingskeppninni. Hún varð í 56. sæti á 25 höggum yfir pari. Embla lék hringina fjóra á 78, 74, 79 og 78 höggum. Besti hringur hennar kom á öðrum keppnisdegi þegar hún lék á þremur höggum yfir pari.

Þetta var fjórða árið í röð sem Ísland tók þátt í mótinu. Bryndís Eva var einnig í liðinu í fyrra, en Embla Hrönn og Lilja Maren tóku nú þátt í fyrsta sinn.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅