Hulda í harðri baráttu um sæti

Hulda Clara Gestsdóttir.

Hulda Clara Gestsdóttir. Ljósmynd/LET

Kylfingurinn Hulda Gestsdóttir er í sjöunda sæti á stigalista LET Access-mótaraðarinnar (LETAS) og í harðri baráttu um sæti á Evrópumótaröðinni (LET) á næsta tímabili.

Hulda, sem vann RB Czech Ladies Challenge í júní á sínu fjórða móti sem atvinnumaður, stefnir á að ljúka tímabilinu vel og tryggja sér keppnisrétt á LET fyrir árið 2027.

„Ég er mjög ánægð með frammistöðu mína hingað til. Ef mér hefði verið boðið sjöunda sætið fyrir síðustu fimm mótin hefði ég tekið því,“ sagði Hulda á heimasíðu LET.

„Það er auðvitað ákveðin pressa en ég reyni bara að spila minn leik og gera mitt besta. Ef það dugar er það frábært, en ef ekki verð ég bara að taka því og sjá hvað gerist.“

„Golfið er mjög sveiflukennt og ég reyni því að nálgast hvert mót eins og ég eigi möguleika á sigri. Það skiptir ekki máli hvernig mér gekk á síðasta móti.

Golfið getur verið mjög ólíkt eftir velli, veðri og jafnvel hvernig maður vaknar þann morguninn,“ sagði Hulda.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅