Andrea byrjaði best
Andrea Bergsdóttir er fremst Íslendinganna til þessa. Ljósmynd/[email protected]
Andrea Bergsdóttir byrjaði best þeirra fjögurra íslenskra kylfinga á Terre Blanche-mótinu á LETAS-mótaröðinni. Leikið er í Tourettes í Frakklandi en mótaröðin er sú næststerkasta í Evrópu.
Andrea er jöfn í 22. sæti á samtals fjórum höggum undir pari eftir fyrsta hring.
Ragnhildur Kristinsdóttir lék á þremur yfir pari og er í 47. sæti.
Hulda Clara Gestsdóttir lék á fimm höggum yfir pari og er í 69. sæti.
Loks er Guðrún Brá Björgvinsdóttir á sjö höggum undir pari og í 74. sæti.
Annar hringurinn verður leikinn á morgun og verður skorið niður fyrir lokahringina um helgina.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗