Jenný og Greipur vörðu titilinn
Jenný Þóra Halldórsdóttir og Greipur Ásmundarson. Ljósmynd/Björgvin Hilmarsson/Klifursamband Íslands
Jenný Þóra Halldórsdóttir og Greipur Ásmundarson vörðu Íslandsmeistaratitla sína í línuklifri á Íslandsmótinu um helgina.
Jenný er Íslandsmeistari í kvennaflokki þriðja árið í röð og Greipur í karlaflokki fjórða árið í röð.
Hrefna Fanney Halldórsdóttir varð önnur í kvennaflokki og Saga Björgvinsdóttir þriðja.
Óðinn Arnar Freysson varð annar í karlaflokki og Daníel Ingi Andrason þriðji.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/39/1683913.jpg)