Á meðal efstu manna í Svíþjóð
Dagbjartur Sigurbrandsson, Íslandsmeistari í golfi, átti gott mót á Opna Gotland-mótinu á Nordic-mótaröðinni fyrir helgi.
Dagbjartur endaði í sjötta sæti á mótinu en hann lék þrjá hringi á samtals fjórum höggum undir pari.
Hefur hann nú sex sinnum endað á meðal tíu efstu á mótaröðinni í ár.
Hlynur Bergsson endaði í 27. sæti á samanlagt tveimur höggum yfir pari.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗