Andrea fremst Íslendinganna

Andrea Bergsdóttir.

Andrea Bergsdóttir var sú eina af fjórum íslenskum kylfingum sem komst í gegnum niðurskurðinn á Terre Blanche Ladies Open, sem lauk á Le Riou-vellinum um helgina.

Mótið var það fimmtánda af nítján á LET Access-mótaröðinni á þessu tímabili, en aðeins fjögur mót eru nú eftir.

Andrea byrjaði mótið vel og lék fyrsta hringinn á pari vallarins, 72 höggum. Hún lék annan hringinn á 76 höggum, fjórum yfir pari, og náði í gegnum niðurskurð. Lokahringinn lék hún á 78 höggum og endaði í 52. sæti mótsins.

Hulda Clara Gestsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir luku báðar leik á sex höggum yfir pari og urðu jafnar í 62. sæti.

Hulda lék fyrsta hringinn á 77 höggum og annan hringinn á 73 höggum. Ragnhildur lék báða hringina á 75 höggum.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir var einnig á meðal keppenda, en hún lék fyrsta hringinn á 79 höggum, sjö yfir pari, og þann annan á 72 höggum. Hún lauk mótinu á sjö höggum yfir pari og varð jöfn í 68. sæti.

Fjögur mót eru eftir af tímabilinu, en efstu sjö kylfingar tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á LET-mótaröðinni á næsta ári.

Hulda Clara er í áttunda sæti listans sem stendur, en Ragnhildur og Andrea eru í sautjánda og átjánda sæti.

Næsta mót LET Access er Iberdrola Calatayud Ladies Open á Spáni dagana 14.-16. október.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅