Setti met í Bandaríkjunum

Eva Kristinsdóttir.

Eva Kristinsdóttir. Ljósmynd/GSÍ

Kylfingurinn Eva Kristinsdóttir lauk frábæru móti á Illini Women’s Invitational á Medinah í Illinois í Bandaríkjunum í gær.

Hún endaði í sjöunda sæti á átta höggum undir pari og bætti skólamet Iowa-háskólans yfir bæði 36 og 54 holur, auk þess að jafna metið yfir 18 holur.

Eva lék hringina þrjá á 66, 69 og 73 höggum. Með því bætti hún 54 holu skólametið um eitt högg. Hún fékk einn örn, þrettán fugla og sjö skolla á hringjunum þremur, en einungis þrír kylfingar sóttu fleiri högg á völlinn í mótinu en Eva.

Með 66 högga hringnum lék Eva á sínu lægsta skori í móti og jafnaði átján holu met skólans. Hún varð einnig fyrsti kylfingurinn á fyrsta ári til að ná þessum árangri.

Iowa-skólinn, sem Eva leikur fyrir, lauk keppni í níunda sæti af fimmtán liðum. Eva lék best allra í liðinu, en Maura Peters kom þar á eftir á tveimur höggum undir pari.

Farið vel af stað í Bandaríkjunum

Eva hefur farið vel af stað á sínu fyrsta tímabili í bandaríska háskólagolfinu. Hún varð jöfn í fimmta sæti á Badger Invitational í september og jöfn í áttunda sæti á Diane Thomason Invitational, þar sem Iowa sigraði í liðakeppninni.

Hún hefur einnig tvívegis verið valin nýliði vikunnar í Big Ten-deildinni á tímabilinu.

Næsta verkefni Evu og liðsfélaga hennar er Route 66 Invitational í Tulsa í Oklahoma dagana 19. og 20. október.

Eva hefur farið vel af stað í bandaríska háskólagolfinu.

Eva hefur farið vel af stað í bandaríska háskólagolfinu. Ljósmynd/GSÍ

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅