GR í 8. sæti á Evrópumóti golfklúbba
Golfklúbbur Reykjavíkur hafnaði í áttunda sæti á Evrópumóti golfklúbba í karlaflokki sem fór fram í Frakklandi um síðustu helgi.
GR lék samtals á 440 höggum, 14 yfir pari, en 23 lið tóku þátt. Liðið skipuðu Jóhann Frank Halldórsson, Böðvar Bragi Pálsson og Arnór Tjörvi Þórsson.
GR var í fimmta sæti fyrir lokahringinn en lék hann á 149 höggum, sjö yfir pari, og féll niður í áttunda sætið. Böðvar Bragi átti besta hring liðsins í mótinu, 70 högg, einu undir pari.
GR tryggði sér þátttökurétt með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í ágúst. Liðið hafnaði í sjötta sæti í Evrópukeppninni í fyrra og hefur því verið meðal átta efstu tvö ár í röð.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗