Áfall fyrir barnabarn Trumps

Kai Trump verður frá keppni næstu vikurnar.

Kai Trump verður frá keppni næstu vikurnar. Ljósmynd/Instagram/Kai Trump

Bandaríski kylfingurinn Kai Trump, barnabarn Donalds Trumps, verður frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla.

Hún hefur gengist undir aðgerð á vinstri úlnlið eftir að hún meiddist á sínu fyrsta móti með Miami-háskólanum.

Hin 19 ára Kai varð fyrir meiðslunum er hún festi kylfu í steypu í miðri sveiflu.

„Ég vonaðist til að komast hjá aðgerð en ég veit að ég tók bestu ákvörðunina fyrir heilsu mína til lengri tíma litið,“ skrifaði hún m.a. á Instagram.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅