Íslandsvinur fær nýjan titil
Íslandsvinurinn, stjörnukokkurinn og sjónvarpsstjarnan Gordon Ramsay var í gær heiðraður með stjörnu á Frægðargötu Hollywood (e. Hollywood Walk of Fame).
Ramsay, sem fagnaði nýverið stórafmæli en hann varð sextugur 8. nóvember, hélt einlæga ræðu þar sem hann fór yfir feril sinn og fór fögrum orðum um fjölskyldu sína og vini.
Hann greindi einnig frá því að fjölskyldan væri að stækka og bráðum fengi hann nýjan titil. Ramsay er að verða afi og sagði fyrsta barnabarnið væntanlegt á næstu dögum.
Dóttir Ramsay, Holly Ramsay, á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, sundkappanum Adam Peaty. Parið gekk í hjónaband milli jóla og nýárs í fyrra.
Myndskeið frá brúðkaupsdeginum sem Holly deildi á Instagram í janúar vakti mikla athygli. Þar má sjá augnablikið þegar faðir hennar sá hana í fyrsta sinn í brúðarklæðum. Gordon gengur rakleitt að dóttur sinni og faðmar hana að sér með tárin í augunum.
Gordon á sex börn með eiginkonu sinni, Tönu Ramsay. Elst er Megan, þá koma tvíburarnir Holly og Jack, þar á eftir Matilda, kölluð Tilly, og yngstir eru Oscar og Jesse James.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


