Tinna Laufey Ásgeirsdóttir um rannsóknina VAL: „Það er auðvelt að dæma fólk út frá einni ákvörðun“
Hvað er kvöld með barninu þínu mikils virði þegar reikningarnir bíða líka? Tinna Laufey Ásgeirsdóttir vill skilja ákvarðanirnar sem fólk tekur í sínu daglega lífi. Hvað ræður því hvernig þú ákveður að endingu að verja tíma þínum þegar upp er staðið? Hún leiðir rannsókn við Háskóla Íslands þar sem raunverulegir peningar koma við sögu og lesendum er boðið að taka þátt.
Það er komið að lokum vinnudagsins þegar foreldri fær boð um aukavakt. Heima bíður barn sem hefur hlakkað til kvöldsins. Á sama tíma er reikningur á gjalddaga. Hvort er rétt að gera?
„Þarna getur bæði ákvörðunin um að vinna lengur og ákvörðunin um að fara heim sprottið af umhyggju fyrir barninu. Við sjáum hvað manneskjan gerir, en vitum kannski lítið um aðstæðurnar sem hún stendur frammi fyrir og hvað stýrir valinu,“ segir Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
„Það er auðvelt að dæma fólk út frá einni ákvörðun. Við viljum skilja betur hvað liggur að baki ákvörðunum okkar.“
Tinna leiðir rannsóknina VAL, þar sem vísindafólk leitar svara við því hvernig fólk tekur ákvarðanir í daglegu lífi. Nú getur fólk á aldrinum 18–66 ára sem býr eða dvelur að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu lagt sitt af mörkum. Fólk er hvatt til að fara inn á vefsíðu rannsóknarinnar, kynna sér hana og taka þátt.
Upplýsingar og þátttaka á val.hi.is
Sama upphæð getur þýtt ólíka hluti
Hvers vegna þurfum við vísindarannsókn til að skilja eitthvað sem við gerum allan daginn?
„Af því að þetta snertir svo margt sem skiptir okkur máli. Þegar við ráðum okkur í vinnu, ákveðum hvar við búum eða hvað við gerum við tímann okkar erum við að móta líf okkar. Svo taka fyrirtæki og stjórnvöld ákvarðanir sem byggja á hugmyndum um hvernig við hin munum bregðast við. Þær hugmyndir þarf að prófa.“
Hún tekur dæmi um manneskju sem fær boð um mikilvægan tíma í heilbrigðisþjónustu á miðjum vinnudegi. Við fyrstu sýn gæti virst einfalt að þiggja hann. Til þess þarf hún þó kannski að fá frí í vinnunni, verða af tekjum og finna einhvern til að sækja barnið.
„Ef við ætlum að skilja hvort hún kemst í tímann þurfum við að átta okkur á öllu þessu. Sama gjaldið getur verið smáútgjald fyrir eina fjölskyldu og valdið annarri verulegum áhyggjum. Jafnvel sami klukkutíminn getur verið misdýr eftir því hver á í hlut.“
Tinna segir að betri skilningur á ákvörðunum geti meðal annars hjálpað við að skipuleggja þjónustu sem fólk kemst raunverulega í og meta hvernig breytingar á verði eða aðgengi snerta ólíka hópa.
„Þetta er mjög mannleg hlið á vísindunum. Hvað er það sem fólk vill geta gert fyrir sig og sína? Hvað stendur í veginum? Við þurfum að hlusta á fólk og skoða ákvarðanir þess við ólíkar aðstæður til að komast nær því.“
Svo sé margt verðmætt í lífinu sem erfitt sé að setja verðmiða á. Hún nefnir val á húsnæði.
„Segjum að þú getir lækkað húsaleiguna með því að flytja í annað hverfi. Það hljómar vel. En þar sem þú býrð núna er vinur þinn í næsta húsi og þið hittist oft yfir kaffibolla. Kannski býr aldrað foreldri í götunni og þú getur litið við á leiðinni heim. Þetta er líka hluti af því sem þú ert að velja. Það segir okkur heilmikið að sjá hvað fólk er tilbúið að láta af hendi til að halda í það sem skiptir það máli.“
Eiga prófessorar sjálfir alltaf auðvelt með að velja?
„Það væri nú þægilegt ef prófgráðan sæi um allar ákvarðanir fyrir mann. Ég þarf líka að vega og meta hvað mér finnst skipta máli. Það er einmitt hluti af því sem gerir þetta svo áhugavert að rannsaka. Og það sem er kannski áhugaverðast er hvenær við raunverulega náum að vega og meta og hvenær þættir í umhveri okkar, þættir sem við áttum okkur engan veginn á að séu að hafa áhrif á okkur, stýra kannski vali okkar ómeðvitað“
Hvað gerist þegar peningarnir eru raunverulegir
Hvað gerir VAL sérstaka?
„Í rannsókninni geta ákvarðanir haft raunverulegar fjárhagslegar afleiðingar fyrir þann sem tekur þátt. Þú getur til dæmis staðið frammi fyrir vali milli peningagreiðslna og sumir fá peninga greidda út. Það gefur okkur tækifæri til að rannsaka ákvarðanir sem skipta raunverulega máli fyrir þann sem tekur þær.“
Sumir þátttakendur fá greiðslu sem getur numið allt að 15.000 krónum. Hvort til greiðslu kemur og hver upphæðin verður ræðst af vali viðkomandi og tilviljun. Sumum getur einnig boðist að kaupa tímabilskort á afslætti. Þar koma til greina Strætó, líkamsrækt hjá Kötlu Fitness og sund- eða menningarkort Reykjavíkurborgar. Lukkuhjól stýrir þeim afslætti sem býðst.
Þátttakendur svara líka spurningum um bakgrunn, viðhorf og venjur. Ferlið getur verið ólíkt milli fólks.
„Þú og manneskjan við hliðina á þér getið því tekið þátt á sama tíma og fengið ólíkar spurningar. Tilviljun kemur líka við sögu, meðal annars þegar ræðst hvaða verð þátttakandi fær og hvort til peningagreiðslu kemur.“
Rannsóknin er unnin með vísindafólki við Háskólann í Maastricht, Max Planck-stofnunina fyrir atferlishagfræði, Háskólann í Varsjá og Harvard-háskóla. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sér um gagnaöflun og verkefnið hefur hlotið styrk úr Rannsóknasjóði.
Hvers vegna færðu ekki að vita allt fyrir fram?
En þú vilt fá okkur í rannsókn án þess að segja okkur nákvæmlega hverju þú ert að leita að?
„Já, og ég skil vel að það veki spurningar. Segjum að ég segði þér að í þessu samtali ætlaði ég að telja hversu oft þú segðir orðið „sko“. Það gæti orðið erfitt að halda áfram að tala alveg eins og þú gerir venjulega. Þú værir allt í einu farin að taka eftir orðinu.“
Svipað geti gerst í rannsókn á hegðun. Þegar fólk veit nákvæmlega hvað á að mæla getur það ósjálfrátt farið að haga sér öðruvísi. Þess vegna fá þátttakendur að vita hvað felst í þátttökunni en nákvæmar rannsóknarspurningar bíða.
„Þú færð upplýsingar um hvað þú tekur þér fyrir hendur, möguleg kaup og greiðslur, meðferð gagna og réttindi þín áður en þú samþykkir þátttöku. Ekkert sem þér er sagt í rannsókninni er ósatt. Við útskýrum rannsóknarspurningarnar nánar þegar gagnaöfluninni lýkur.“
Greiðslukortið og reikningsnúmerið
Fólki hefur verið kennt að fara varlega með kortaupplýsingar á netinu. Af hverju þarf það að gefa þær upp í VAL?
„Greiðslukortið er vegna mögulegra kaupa á tímabilskorti. Þú gefur upp það hámarksverð sem þú ert tilbúin að greiða og skuldbindur þig til kaupa ef verðið sem þér býðst er innan þeirra marka. Kerfið sækir heimild fyrir hámarksupphæðinni á kortið og hún þarf að liggja fyrir til að þú getir haldið áfram. En það er samt rétt að taka fram að það þarf enginn að kaupa neitt í rannsókninni sem ekki hefur áhuga á slíkum kaupum. Það ætti því ekki að fæla fólk frá.“
„Það þarf að skrá greiðslukort til að ljúka þátttöku, líka þótt niðurstaðan verði sú að engin kaup fari fram. Þetta vil ég að fólk viti áður en það byrjar. Það fær svo skýrar leiðbeiningar þegar að þessum hluta kemur.“
Og af hverju gæti líka verið beðið um bankareikning?
„Ef þú færð peningagreiðslu þurfum við reikningsnúmer til að geta lagt hana inn hjá þér. Greiðslukortið er notað ef þú kaupir tímabilskort.“
Verifone um kortaupplýsingarnar fyrir hönd Landsbankans og fólk ætti að geta treyst því að þessir aðilar auk Háskóla Íslands kunni vel með slíkra upplýsingar að fara. Rannsóknarteymið varðveitir þær ekki. Þeim er eytt þegar greiðslu lýkur eða heimildin er felld niður. Bankareikningsnúmeri er eytt þegar öllum millifærslum til þátttakandans er lokið.
Hægt að athuga sjálfur hver stendur að þessu og fara beint inn á heimasíðu rannsóknarinnar
„Þú getur slegið val.hi.is sjálf inn í vafrann. Þar sérðu hverjir standa að rannsókninni og getur lesið upplýsingarnar og farið inn í þátttökuna.“ Háskóli Íslands ber ábyrgð á rannsókninni og vinnslu persónuupplýsinga. Við greiningu vinna rannsakendur með gögn undir dulkóðuðum auðkennum, án nafna og kennitalna.
Tækifæri til að kynnast eigin ákvörðunum
Fær fólk sjálft eitthvað að vita um það sem kemur út úr þátttökunni?
„Já. Þau sem ljúka þátttöku geta valið í lokin að fá persónulega endurgjöf. Þá fá þau síðar að sjá einkenni eigin ákvarðana í samanburði við aðra þátttakendur. Endurgjöfin kemur þegar rannsókninni allri er lokið.“
Tinna vonast til að fá fólk með fjölbreyttan bakgrunn og ólíka reynslu inn í rannsóknina.
„Þegar við biðjum fólk að taka þátt erum við að biðja það um að gefa okkur tíma úr sínu lífi. Ég veit að sá tími skiptir máli. Á móti verður til þekking sem við gætum aldrei búið til ein á skrifstofunni. Hvert einasta svar kemur frá manneskju sem hefur sína reynslu og sitt sjónarhorn.“
Svona tekurðu þátt
VAL er opin fólki á aldrinum 18–66 ára sem býr eða dvelur að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu. Lögheimili má vera skráð annars staðar. Farðu á val.hi.is og hafðu rafræn skilríki og greiðslukort við höndina. Þátttakan tekur um 15–45 mínútur. Þú getur gert hlé, en þarft að ljúka innan 24 klukkustunda frá fyrstu innskráningu. Mögulegar peningagreiðslur eru bundnar við að þátttöku sé lokið innan þess tíma.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗