„Mér fannst einhvern veginn bannað að vera glöð“

Móðir Þórunnar Hönnu varð bráðkvödd í skíðaferð með fjölskyldunni árið 2018. mbl.is/Árni Sæberg

Þórunn Hanna Gunnarsdóttir var aðeins 13 ára þegar móðir hennar lést skyndilega úr hjartaáfalli í fjölskylduferð í Frakklandi. Það var erfitt fyrir hana að takast á við sorgina á unglingsárunum og lengi vel fannst henni hún ekki mega vera glöð eftir móðurmissinn.

Þátttaka í starfi Arnarins þegar hún var barn kenndi henni hins vegar að sorg og gleði geta farið saman og að hún þyrfti ekki að fela tilfinningar sínar fyrir öðrum.

Í dag er Þórunn komin á fullorðinsár og hefur snúið aftur til Arnarins, nú sem varamaður í stjórn og sjálfboðaliði. Þar miðlar hún eigin reynslu til barna sem hafa misst náinn ástvin og vonast til að geta veitt þeim sama stuðning og hún fékk sjálf. Og jafnvel verið þeim fyrirmynd.

Þórunn missti móður sína árið 2018 þegar fjölskyldan var stödd í skíðaferð í Frakklandi. „Við vorum bara í skíðaferð, fjölskyldan, og mamma varð bráðkvödd um miðjan dag uppi í fjöllunum. Hún fékk hjartaáfall,“ segir Þórunn í samtali við Morgunblaðið.

Á þessum tíma var hún í áttunda bekk og fermingarundirbúningur stóð yfir. „Ég var ótrúlega heppin með bakland og það var margt fólk sem greip okkur. Það tók ferminguna bara að sér og hjálpaði okkur mjög mikið.“

Erfitt að segja frá

Í gegnum fermingarfræðsluna hafði Þórunn kynnst Jónu Hrönn Bolladóttur presti og komst fyrir hennar tilstilli í kynni við Örninn, sem var stofnaður sama ár. Þar kynntist hún öðrum börnum sem höfðu misst foreldra eða systkini og fann vettvang þar sem hún gat rætt missinn án þess að óttast viðbrögð annarra. „Það hjálpaði mér svo mikið að læra að tala um sorgina og hafa vettvang þar sem maður má tala um hana án þess að vera einhvern veginn að eyðileggja stemninguna í kringum sig,“ útskýrir hún.

Þórunn segir að það hafi skipt sig miklu máli að geta rætt móður sína og rifjað upp minningar um hana án þess að öðrum þætti það óþægilegt.

„Tilfinningarnar sem maður var með, sama hvernig þær voru, urðu einhvern veginn venjulegri. Maður var ekki jafn frábrugðinn öllum hinum. Ef manni leið á einn veg eða annan þá var alltaf einhver annar sem hafði upplifað það líka.“

Fyrir utan Örninn fann hún hins vegar oft fyrir því að fólk vissi ekki hvernig það átti að bregðast við þegar hún minntist móður sinnar. „Ég fann oft að fólki fannst það óþægilegt, eins og það ætti að vera leitt yfir einhverri skemmtilegri minningu sem ég var að rifja upp.“

Hún upplifði þetta sérstaklega sterkt þegar kaflaskil urðu í lífi hennar, hún hóf nám í menntaskóla og eignaðist nýjan vinahóp. Það reyndist henni nefnilega erfitt að segja nýju vinunum frá því að móðir hennar væri látin og eftir því sem lengri tími leið án þess að hún nefndi missinn varð það sífellt erfiðara. „Maður er alltaf einhvern veginn að passa þann sem maður er að segja frá frekar en sjálfan sig,“ segir hún.

Þátttakan í Erninum hjálpaði henni að takast á við þessar aðstæður. Hún fékk æfingu í að segja frá missinum í öruggu umhverfi þar sem engum fannst það óþægilegt eða varð vandræðalegur. Eitt það mikilvægasta sem Þórunn lærði var að hún mætti leyfa sér að gleðjast þrátt fyrir sorgina. Hún rifjar upp að fyrst eftir andlát móður sinnar hafi sér fundist hún eiga að vera leið öllum stundum.

„Mér fannst alltaf fyrst að ég þyrfti að vera leið af því að það voru bara aðstæðurnar. Mér fannst einhvern veginn bannað að vera glöð.“ Hún velti því jafnvel fyrir sér hvort aðrir myndu halda að hún syrgði móður sína ekki nægilega mikið ef þeir sæju hana hlæja eða skemmta sér.

Í Erninum upplifði hún hins vegar að hægt væri að ræða erfiðustu hluti lífsins og skemmta sér skömmu síðar. „Við fórum ótrúlega djúpt og töluðum um erfiðustu hluti sem hægt er að tala um og svo tíu mínútum seinna vorum við farin að leika okkur í skotbolta í íþróttahúsinu.“ Sorgin útiloki ekki gleðina. „Maður má hafa gaman og lífið má vera æðislegt. Á sama tíma má maður líka alveg vera leiður og eiga erfiða daga, þótt lífið sé almennt mjög gott fyrir utan það.“

Sorgin hefur breyst

Þórunn segir sorgina ekki hafa horfið með árunum heldur hafi hún breyst eftir því sem hún sjálf hefur þroskast, en hún fann sérstaklega mikið fyrir fjarveru móður sinnar á unglingsárunum. „Ég á tvo bræður og pabba og það var alltaf kannski meiri gauragangur heima heldur en einhver skvísulæti. Það er alltaf svolítil sorg í því að hafa ekki einhvern til að spegla sig í.“

Þá grípur söknuðurinn hana gjarnan við stóra áfanga í lífinu. „Við stóra lífsviðburði, eins og að útskrifast úr menntaskóla, kemur það einhvern veginn allt upp aftur og maður fer að óska þess að hún væri með manni í þeim aðstæðum,“ útskýrir Þórunn.

Eftir að hafa tekið þátt í starfi Arnarins í nokkur ár kvaddi Þórunn félagið þegar hún eltist úr barnastarfinu. Vorið 2024 ákvað hún hins vegar að snúa aftur, þá tvítug og komin í háskólanám, sem sjálfboðaliði og varamaður í stjórn. Hennar sára reynsla gerir það að verkum að hún skilur börnin vel sem nú sækja starfið og tengist þeim í gegnum sambærilega reynslu. „Mér finnst alveg ótrúlega gefandi að vera sjálfboðaliði. Ég næ oft að hafa extra mikinn skilning á börnunum. Maður skilur tilfinningarnar, þótt það sé auðvitað aldrei nákvæmlega eins hjá öllum.“

Þá þekkir hún jafnframt af eigin raun hvernig það er að mæta í fyrsta sinn í ferðir Arnarins, finna fyrir heimþrá og þurfa að ræða erfiða hluti við ókunnuga. Þórunn vonast til þess að reynsla sín geti einnig gefið börnunum von um framtíðina.

„Ég held að það sé gott fyrir börnin að hafa einhverja fyrirmynd sem þau sjá að missti líka einhvern en er núna orðin fullorðin og á gott líf.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab