Meirihluti andvígur því að borgin selji Ljósleiðarann

44% segjast mjög andvíg sölu Ljósleiðarans en aðeins 12% mjög hlynnt. mbl.is/Ólafur Árdal

Meirihluti Reykvíkinga, 57%, er andvígur því að borgin selji Ljósleiðarann að hluta eða öllu leyti samkvæmt nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Samfylkinguna. Aðeins 21% eru hlynnt sölunni og 22% hvorki né. Af þeim sem taka afstöðu eru 73% á móti sölunni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá borgarstjórnarflokki Samfylkingarinnar. 

Andstaðan er einnig eindregin, 44% segjast mjög andvíg sölu en aðeins 12% mjög hlynnt.

1.443 Reykvíkingar

Netkönnun var framkvæmd dagana 30. október til 16. nóvember. Spurt var: „Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú því að Reykjavíkurborg selji að hluta eða öllu leyti eignarhlut sinn í Ljósleiðaranum?“

Úrtakið var 1.443 Reykvíkingar 18 ára og eldri, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup. Svarendur voru 555 og þátttökuhlutfall 38,5%.

Af svarendum tóku 473 afstöðu og vikmörk á heildarniðurstöðu eru ±4,5 prósentustig.

Andstaðan mest hjá eldra fólki

Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar í borgarstjórn hefur lýst því yfir að hann vilji selja félagið og hluthafafundur Ljósleiðarans samþykkti í lok október að breyta mætti eignarhaldi þess með fyrirvara um staðfestingu eigenda Orkuveitunnar.

Samkvæmt könnun Gallup nær andstaðan þvert á samfélagið. Fleiri eru á móti sölu en með henni í öllum aldurshópum, hjá báðum kynjum og á öllum menntunarstigum. Hún er mest hjá eldra fólki, þar sem nærri þrír af hverjum fjórum 70 ára og eldri eru andvígir.

Á fundi borgarstjórnar á þriðjudag felldi meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar tillögu Samfylkingarinnar um að borgarstjórn skoraði á Alþingi að lögfesta kröfu um aukinn meirihluta, tvo þriðju hluta atkvæða, þegar sveitarfélög selja meirihluta í mikilvægum innviðafyrirtækjum á borð við veitur, orkufyrirtæki, hafnir og fjarskiptanet.

Í dag dugar einfaldur meirihluti, 12 af 23 borgarfulltrúum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab