Íslandsvinur fær nýjan titil

Breski stjörnukokkurinn hélt einlæga ræðu við athöfnina.

Breski stjörnukokkurinn hélt einlæga ræðu við athöfnina. AFP

Íslandsvinurinn, stjörnukokkurinn og sjónvarpsstjarnan Gordon Ramsay var í gær heiðraður með stjörnu á Frægðargötu Hollywood (e. Hollywood Walk of Fame).

Ramsay, sem fagnaði nýverið stórafmæli en hann varð sextugur 8. nóvember, hélt einlæga ræðu þar sem hann fór yfir feril sinn og fór fögrum orðum um fjölskyldu sína og vini.

Hann greindi einnig frá því að fjölskyldan væri að stækka og bráðum fengi hann nýjan titil. Ramsay er að verða afi og sagði fyrsta barnabarnið væntanlegt á næstu dögum.

Dóttir Ramsay, Holly Ramsay, á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, sundkappanum Adam Peaty. Parið gekk í hjónaband milli jóla og nýárs í fyrra.

Myndskeið frá brúðkaupsdeginum sem Holly deildi á Instagram í janúar vakti mikla athygli. Þar má sjá augnablikið þegar faðir hennar sá hana í fyrsta sinn í brúðarklæðum. Gordon gengur rakleitt að dóttur sinni og faðmar hana að sér með tárin í augunum.

Gordon á sex börn með eiginkonu sinni, Tönu Ramsay. Elst er Megan, þá koma tvíburarnir Holly og Jack, þar á eftir Matilda, kölluð Tilly, og yngstir eru Oscar og Jesse James.

Gordon Ramsay ásamt dóttur sinni, Tilly Ramsay, og eiginkonu sinni, Tönu Ramsay. AFP/Leon Bennett

Ramsay stillti sér að sjálfsögðu upp með stjörnunni sinni.

Ramsay stillti sér að sjálfsögðu upp með stjörnunni sinni. AFP

Leikarinn Joel McHale var meðal gesta við athöfnina.

Leikarinn Joel McHale var meðal gesta við athöfnina. AFP

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab