Grindavík og Njarðvík fara hvort sína leið
Grindavík og Njarðvík hafa ákveðið að slíta samstarfi sínu í meistaraflokki kvenna í fótbolta eftir tvö tímabil. Grindavík mun leika í 2. deild á næsta ári en Njarðvík hefur rétt á sæti sameiginlega liðsins í Bestu deildinni.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu knattspyrnudeilda félaganna. Njarðvíkingar hafa ekki tekið ákvörðun um hvort þeir nýti keppnisréttinn og vinnur stjórn deildarinnar nú að því að meta næstu skref.
Grindvíkingar ætla að tefla fram liði undir eigin nafni og leika heimaleiki sína í Grindavík. Félagið segir það mikilvægan þátt í undirbúningi fyrir uppbyggingu knattspyrnunnar og samfélagsins í bænum.
Sameiginlegt lið Grindavíkur/Njarðvíkur fór upp í Bestu deildina á fyrsta tímabili samstarfsins. Í sumar hélt liðið sæti sínu í deild þeirra bestu og komst í úrslitaleik bikarkeppninnar á Laugardalsvelli, þar sem það tapaði naumlega.
Í yfirlýsingunni þakka félögin leikmönnum, þjálfurum, starfsfólki, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum og stuðningsfólki fyrir framlagið. Þau segja stuðning úr báðum bæjarfélögum hafa verið ómetanlegan.
Nýti Njarðvík sér ekki sætið í Bestu deildinni kemur það í hlut Hauka, sem höfnuðu í þriðja sæti Lengjudeildarinnar. Fótbolti.net greinir frá því að Haukar búist við að fá boð um sætið.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗