Getum við alltaf fyrirgefið?
Linda Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi skrifar um fyrirgefninguna og veltir fyrir sér hvort það sé hægt að fyrirgefa allt.
Ég hef velt því fyrir mér að undanförnu hvort það sé í raun hægt að fyrirgefa allt, og þá á ég við þannig að það séu engar tilfinningar eftir gagnvart því sem gerðist.
Ég er kannski svo illa gerð að ég hef komist að því með mig að ég á bara mjög erfitt með tilfinningar gagnvart sumum gömlum málum. Þó að ég þykist vera búin að afgreiða þau þá situr samt eftir einhver tilfinning sem mér gengur illa að losna við þegar mér verður hugsað til atburðanna eða málefnanna.
Sumu er reyndar auðvelt að gleyma og fyrirgefa, en svo koma þessi atriði sem hafa alltaf jafn mikil áhrif á mig. Það á kannski helst við um atburði sem hafa sært mig eða orðið til þess að líf mitt breytist á erfiðan hátt. Og fyrirgefningin er þá kannski helst fólgin í því að ég hef lært að lifa með þeim afleiðingunum sem hafa skapast.
Ég hef alltaf hvatt alla í kringum mig til að fyrirgefa þeirra sjálfra vegna og sleppa takinu því í raun er það eina sem við getum gert fyrir okkur sjálf er að finna sáttina og sleppa tökunum ekki satt? En þvi miður virkar það ekki alltaf.
Við höldum að við þurfum að fyrirgefa allt til að vera nógu þroskuð og góð, en sumt á bara einfaldlega alls ekki að fyrirgefa og sumt getur einfaldlega skaðað okkur sjálf ef við fyrirgefum.
Sumir atburðir eru einnig þannig að við getum bara hætt að búast við afsökunarbeiðni og við fáum líklega aldrei skýringar á sumu sem gerðist. Það þekki ég og veit hversu erfitt það getur verið þegar þannig er.
Ég held að stundum séum við einnig að skamma okkur fyrir það að geta ekki fyrirgefið eða sleppt tilfinningum vegna þess að við viljum vera svo kærleiksrík og góð. En svo getum við einfaldlega ekki fyrirgefið né sleppt takinu að fullu vegna þeirra áhrifa sem það hafði eða hefur enn á líf okkar og vellíðan.
Ég bið gjarnan fyrir þeim sem ég hef þessar vondu tilfinningar gagnvart og í sumum tilfellum hefur mér tekist að fullu að losna við allar tilfinningar gagnvart aðstæðum og manneskjum. En í öðrum tilfellum reyni ég góða stelpan, að senda góðar óskir til þeirra sem ég kýs að halda í fjarlægð vegna þeirra vondu tilfinninga sem það fólk vekur hjá mér.
Stundum er líka stærsti styrkleiki okkar falinn í því að viðurkenna að kannski var það sem gert var á okkar hluta einfaldlega of stórt fyrir okkur til að það geti verið fyrirgefanlegt.
Og þó að ég sé í samskiptum við þá sem hafa brotið traust mitt með einhverjum hætti þýðir það ekki að traust hafi skapast hjá mér gagnvart viðkomandi aðilum eða að þeir verði aftur í mínum innsta hring.
En hvað getum við gert til að vinna úr særindunum og vonbrigðunum eða fundið stað friðar?
Ég held að það sem atburðirnir kveiktu hjá okkur eða því sem mér amk hefur fundist vera árás á öryggi mitt, traust, sjálfsvirðingu eða trú á annað fólk þarfnist alltaf úrvinnslu. Ég held að við þurfum alltaf að skoða hvað það var sem raunverulega særði okkur.
Stundum held ég því miður að við verðum bara að gefa okkur leyfi til að fyrirgefa ekki, því ég held að það geti verið ákveðin lausn að sleppa tökum með þeim hætti.
Það gefur okkur einnig leyfi til að vera við sjálf og halda áfram okkar lífi.
Og hver veit, kannski læðist fyrirgefningin að okkur þegar við erum ekki að rembast við að halda í beiskjuna og réttmætu reiðina en segja okkur að við verðum að fyrirgefa allt.
Kannski er okkar stærsta verkefni ekki að fyrirgefa öðrum heldur að fyrirgefa okkur fyrir mennskuna eða tilfinningar okkar, og passa að yfirgefa ekki þá persónu sem við erum vegna þess sem gerðist.
Og munið elskurnar, að við eigum öll skilið að lifa góðu lífi hvort sem við getum fyrirgefið eða ekki (en reynum samt að sleppa tökunum og reiðinni ef það er hægt, okkar sjálfra vegna).
Ég vil taka það fram að menning slaufunar eins og hún birtist í dag í fjölskyldum og á samfélagsmiðlum er efni í annan pistil og kannski verður hann næsta efni sem ég fjalla um.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗