Útiloka ekki að gefa upp ríkisfang hinna grunuðu

Frá Keflavíkurflugvelli. Ferðasaga 15 ára stúlku og mannsins sem hún var í fylgd með vakti athygli tollvarða í nóvember 2024. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Suðurnesjum útilokar ekki að gefa upp ríkisfang þeirra sex sem grunaðir eru um mansal í tengslum við meint nauðungarhjónaband 15 ára stúlku.

Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðalsaksóknari hjá embættinu, segir í samtali við mbl.is að hinir grunuðu séu EES-borgarar. Áður hefur komið fram að þeir séu allir frá sama landi.

Stúlkan kom hingað til lands í nóvember 2024 í fylgd manns á þrítugsaldri. Ferðasaga þeirra vakti athygli tollvarða á Keflavíkurflugvelli. Stúlkan sagði lögreglu að foreldrar hennar hefðu gefið hana manninum í hjónaband. Hann er einnig grunaður um kynferðisbrot.

Í greinargerð lögreglu, sem rakin er í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness um farbannskröfu á hendur móður stúlkunnar, kemur fram að lögregla hafi aflað upplýsinga frá erlendum yfirvöldum um barnabrúðkaup samkvæmt rómahefðum.

Í samtali við mbl.is í gær vísaði Alda Hrönn meðal annars til persónuverndarsjónarmiða þegar hún var spurð hvers vegna lögreglan gæfi ekki upp ríkisfang hinna grunuðu. Hún segir að embættið hafi þá ekki tekið endanlega ákvörðun um hvort upplýsingarnar yrðu veittar.

Vega saman ólíka hagsmuni

Alda Hrönn segir stjórnendur og rannsakendur meta í hverju máli hvaða upplýsingar sé rétt að veita. Þar þurfi að vega saman rannsóknarhagsmuni, persónuverndarsjónarmið og hagsmuni almennings af því að fá upplýsingar um málið.

Hún segir athyglina sem málið vakti í vikunni hafa komið lögreglu nokkuð á óvart. Embættið hafi þó viljað svara fyrirspurnum fjölmiðla strax.

Rannsóknin hefur náð til nokkurra Evrópulanda. Í gær sagði Alda Hrönn hana langt komna en að enn væri nokkuð í að tekin yrði ákvörðun um ákæru.

Úrskurðurinn birtist á forsíðunni

Málið komst í fréttir á þriðjudag þegar úrskurður Landsréttar frá 30. janúar 2025 birtist á vef dómstólanna, tæpum 22 mánuðum eftir uppkvaðningu.

Með úrskurðinum felldi Landsréttur úr gildi farbann sem Héraðsdómur Reykjaness hafði gert föður stúlkunnar að sæta. Landsréttur taldi lögreglustjóra ekki hafa sýnt nægilega fram á rökstuddan grun um að faðirinn hefði brotið gegn mansalsákvæði hegningarlaga, sem vísað var til í farbannskröfunni.

Spurð hvers vegna úrskurðurinn hafi fyrst birst nú bendir Alda Hrönn á rannsóknarhagsmuni sem líklega skýringu. Hún segir nokkuð algengt að lögregla óski af þeim sökum eftir að birtingu úrskurða sé frestað. Biðin geti orðið löng, meðal annars þegar rannsókn kalli á samstarf við erlend lögregluyfirvöld.

Alda Hrönn segir að úrskurðir sem birtast löngu eftir uppkvaðningu raðist yfirleitt eftir uppkvaðningardegi á vef dómstólanna. Að þessu sinni hafi úrskurðurinn hins vegar birst á forsíðu vefsins og þannig vakið athygli á málinu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab