„Þeir ætla sér að ráða skipan heimsmála“
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 16:00
Vladimír Pútín Rússlandsforseti, Xi Jinping Kínaforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty
Í dag fór fram tímamótafundur forseta Bandaríkjanna, Kína og Rússlands. Xi Jinping Kínaforseti tók á móti Donald Trump Bandaríkjaforseta og Vladimír Pútín Rússlandsforseta í Shenzen í Kína en þetta er í fyrsta sinn sem leiðtogarnir hittast saman. Í ávörpum sínum tóku þeir allir fram að fundurinn væri sögulegur.
Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði fer ítarlega yfir þýðingu fundarins í færslu á Facebook. Þar segir hann að þessi fundur sé liður í tilraun þeirra Trump, Xi og Pútíns að breyta skipun heimsmála.
„Yfirlýst markmið þeirra er að breyta alþjóðakerfinu sér í hag og hefur verið það allt frá því að þeir tóku við embætti. Með fundinum sniðganga þeir alþjóðastofnanir og samráðsvettvang ríkja sem lagt hafa grunn að núverandi heimsskipan eins og Sameinuðu þjóðirnar, Alþjóðaviðskiptastofnunin og fundi leiðtoga G7/G8- og G20-ríkja. Þannig útiloka þeir áhrif annarra ríkja og alþjóðastofnana á þær ákvarðanir sem þeir hyggjast taka,“ segir Baldur.
Baldur Þórhallsson prófessor. Mynd/RÚV
Hann segir að ríkin þrjú deili um margt en það sé nú minni samkeppni um áhrifasvæði en oft áður.
„Leiðtogarnir virðast vera komnir vel áleiðis með að samþykkja að nágrannaríki hvers annars falli undir þeirra áhrifasvæði. Stórveldin mega nánast ráðskast með þau að vild. Þannig fellur til að mynda allt svæðið frá syðsta odda Suður-Ameríku til nyrsta odda Norður-Ameríku undir Bandaríkin. Nágrannaríki Rússlands sem hafa ekki þegar gengið í NATO eða eru á leiðinni að gerast aðilar að Evrópusambandinu falla undir rússneskt áhrifasvæði.“
Þá hafi þessi fundur styrkt stöðu Rússlands á alþjóðasviði. „Með fundinum senda forsetar Bandaríkjanna og Kína skýr skilaboð til umheimsins um að Rússland sé mikilvægt ríki sem eigi að semja við um skipan heimsmála. Útilokun Pútíns og Rússlands á alþjóðavettvangi er hafnað. Rússland er og verður mikilvægt ríki vegna náttúruauðlinda, yfirráða á norðurslóðum og náinna tengsla við fjölda ríkja heims.“
Evrópa útilokuð
Baldur segir að Kína komi best út úr þessum fundi.
„Forseta Kína hefur tekist að sýna styrk og staðfestu. Bandaríkin og Rússland hafa skapað Kína tækifæri til að skipa sér í fremstu röð meðal stórveldanna. Kína stendur fast á sínu, á samskipti við báða aðila og reynir að miðla málum á milli þeirra. Jafnframt talar Kína fyrir frjálsum viðskiptum og gegn viðskiptaþvingunum. Bandaríkin leyfa Kína að komast upp með að styðja innrás Rússlands í Úkraínu, stunda njósnir og fremja skemmdarverk. Kína hefur sjaldan, ef nokkurn tíma, gegnt jafn veigamiklu hlutverki í mótun alþjóðamála.“
Þá haldi Trump Bandaríkjaforseti áfram að sniðganga sína helstu bandamenn. Þeir muni þá í auknum mæli snúa sér til Kína.
„Þeir eiga ekki annarra kosta völ í stöðunni á meðan Trump og fylgismenn hans eru við völd í Hvíta húsinu. Þessi staða gæti þó breyst með tilkomu nýs forseta, en leiða má líkur að því að næsti forseti muni einnig vilja halda öðrum ríkjum frá samningaborði ríkjanna þriggja,“ segir Baldur.
„Fundurinn undirstrikar vilja ríkjanna þriggja til að útiloka ríki Evrópu frá ákvarðanatöku um skipan heimsmála. En stórveldin ganga lengra. Ríki Evrópu fá ekki einu sinni sæti við borðið þegar línurnar um örlög einstakra Evrópuríkja eins og Úkraínu eru markaðar. Ríki Evrópu standa frammi fyrir stórum vanda nú þegar veldin þrjú ætla sér að ráðskast með þau. Stóra spurningin er hvaða Evrópuríkjum verður kastað fyrir fætur rússneska bjarnarins að kröfu forseta Rússlands.“
Það skýrasta sem komi út úr þessum fundi séu breyttu valdahlutföllin í heiminum.
„Skilaboð leiðtoganna þriggja eru skýr. Þeir ætla sér að ráða skipan heimsmála. Eitt það merkasta við alþjóðakerfið frá lokum síðari heimsstyrjaldar eru alþjóðastofnanir sem binda hendur stórra ríkja og gefa litlum og meðalstórum ríkjum möguleika á að verja hagsmuni sína og hafa áhrif á alþjóðamál. Allt tal um aukið vægi meðalstórra ríkja eins og Kanada á skipan heimsmála er nú hjóm eitt.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗