Ákærður fyrir 136 milljóna króna skattalagabrot

Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru vegna stórfelldra brota gegn skatta- og bókhaldslögum og krefst refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. mbl.is/Hjörtur

Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur rekstraraðila hreingerningafyrirtækis sem grunaður er um meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum sem framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúruhafi fyrirtækis sem stofnað var árið 2005, en er nú afskráð.

Er ákærða gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum á uppgjörstímabilum frá janúar 2018 til desember 2022 og auk þess fyrir að hafa ekki staðið skil á innheimtum virðisaukaskatti sem innheimtur var, eða innheimta bar, við starfsemina þau uppgjörstímabil, samtals 51.291.002 krónum.

Þá er hann ákærður fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald við rekstur fyrirtækis síns, svo sem lög bjóða, auk þess að vanrækja að varðveita fylgiskjöl bókhalds fyrir rekstrarárin 2018 til 2022.

Efnislega röng skattframtöl

Þá gefur B-liður ákærunnar ákærða að sök meiri háttar skattalagabrot með því að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum fyrir gjaldárin 2019 til 2023 vegna tekjuáranna 2018 til 2022 með þeim hætti að telja ekki fram á þeim úttektir hans úr rekstri fyrirtækisins, samtals að fjárhæð 188.862.883 krónur og með því komist hjá greiðslu tekjuskatts og útsvars að fjárhæð samtals 85.326.040 krónur.

Varða brot ákærða við tilfærðar greinar almennra hegningarlaga, laga um virðisaukaskatt, laga um bókhald og laga um tekjustofna sveitarfélaga og krefst héraðssaksóknari refsingar auk þess að ákærði verði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab