Meirihlutinn í Reykjanesbæ gerir ráð fyrir afgangi
Halli bæjarsjóðs Reykjanesbæjar nam tæpum 10 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hann hafði numið tæpum 103 milljónum króna í lok júní. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins gerir ráð fyrir að bæjarsjóður skili afgangi á árinu í heild.
Níu mánaða uppgjörið var kynnt í bæjarráði í morgun. Samkvæmt tilkynningu flokkanna nam rekstrarleg framlegð bæjarsjóðs 9,4% á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 8,4% á fyrri árshelmingi.
Í uppgjöri fyrri árshelmings voru færðar til tekna 366 milljónir króna í einskiptistekjur frá HS Veitum. Án þeirra hefði hallinn numið um 469 milljónum króna. Fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir rúmlega 93 milljóna króna afgangi á fyrstu sex mánuðum ársins.
Fækkuðu nefndum og lækkuðu laun bæjarstjóra
Meirihlutinn tók við stjórn sveitarfélagsins í júní. Í tilkynningu flokkanna segir að síðan hafi verið hert á útgjaldaaðhaldi og ákveðið að ráða ekki að nýju í nokkur störf sem losnuðu.
Nefndum og ráðum sveitarfélagsins var jafnframt fækkað, skipulagi stjórnsýslunnar og verkaskiptingu innan hennar breytt og laun bæjarstjóra lækkuð. Þá var sett á fót teymi til að fara yfir reksturinn og leita frekari leiða til hagræðingar.
„Strax á fyrstu vikum nýs meirihluta réðumst við í breytingar og hagræðingaraðgerðir með það að markmiði að ná betri tökum á rekstrinum,“ er haft eftir Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra í tilkynningunni. Hann þakkar starfsfólki Reykjanesbæjar fyrir þátttökuna í þeirri vinnu.
Fjárhagsáætlun rædd 1. desember
Gunnlaugur Kárason, formaður bæjarráðs, segir í tilkynningunni að meirihlutinn ætli að halda áfram að beita aðhaldi í rekstri. Hann segir ábyrgan rekstur forsendu þess að hægt verði að lækka álögur á bæjarbúa og efla þjónustu við fjölskyldur.
Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2027 fer til fyrri umræðu í bæjarstjórn 1. desember.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗